Umsókn í Kötlu félagsmannasjóð, starfsmenn sveitarfélaga

Aðeins starfsmenn sveitarfélaga og sjálfseignastofnana

 
Búið er að opna fyrir umsóknir í Kötlu félagsmannasjóð sjá nánar: katla.bsrb.is
Katla er sjóður fyrir þá sem voru félagsmenn starfandi hjá sveitarfélögum, Dalbæ, Hjallastefnu og sjálfseignastofnana um lengri eða skemmri tíma á árinu 2020.

Til að fá greitt úr sjóðnum þurfa félagsmenn að sækja um á rafrænni umsóknarsíðu sjóðsins og leggja fram viðeigandi upplýsingar svo sem síðasta launaseðil viðmiðunarárs, starfshlutfall og starfstíma yfir tímabilið 1. janúar til 31. desember 2020.
 
Sjóðurinn er jöfnunarsjóður sem til varð í síðustu kjarasamningum og greiðir til þeirra félagsmanna sem rétt eiga að hámarki kr. 80.000.
Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar, greitt verður úr sjóðnum í apríl.
Kynntu þér málið og sæktu um hér: www.minarsidurkatla.bsrb.is