Skilmálar leigutaka

Orlofssjóður Kjalar stéttarfélags hefur til útleigu sjö íbúðir allt árið um kring. Fimm íbúðir í Reykjavík, eina í Kópavogi og eina á Akureyri. Íbúðirnar eru vel búnar húsgögnum og húsbúnaði. Hægt er að leigja þær í viku, helgar eða stakar nætur en þó aldrei lengur en viku hverju sinni.

Skilmálar leigutaka:

  1. Leigutaki ber ábyrgð á dvalarstað meðan á leigutíma stendur og skuldbindur sig til að bæta það tjón sem verða kann. Umgengnisreglur er að finna á leigustað og ber að kynna sér þær og fara eftir þeim í einu og öllu.

  2. Verði leigutaki eða gestir hans uppvís að slæmri umgengni eða brotum á þeim reglum sem gilda, á hann á hættu að innheimt verði óþrifagjald allt að kr. 30.000 og að verða útilokaður frá frekari leigumöguleikum. 

  3. Gæludýr eru stranglega bönnuð í öllum húsum og íbúðum félagsins sem og á þeim útisvæðum sem þeim tilheyra og gildir það líka um gæludýr gesta. Reykingar og notkun rafretta eru bannaðar innandyra.

  4. Leigjanda er almennt óheimilt að framselja leigurétt sinn eða framleigja hið leigða húsnæði án samþykkis leigusala.

  5. Áríðandi er að skila lyklum í lyklabox við brottför og ef sóttir voru lyklar á skrifstofu þarf að skila þeim þangað aftur. 

 

Skilmálar vegna afbókana

Til þess að afbóka skal senda tölvupóst á kjolur@kjolur.is með afriti af leigusamningi eða pöntunarnúmeri viðkomandi bókunar.

  • Almenna reglan um afbókanir er að félagsmaður getur afbókað orlofseign og fengið endurgreitt að fullu ef beiðnin berst með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara.
  • Berist afbókun með minna en tveggja vikna fyrirvara er innheimt afbókunargjald að upphæð kr. 2.000.
  • Berist afbókun með minna en 48 tíma fyrirvara er innheimt afbókunargjald að upphæð kr. 11.000.
  • Sé leigutímabil þegar hafið er ekki endurgreidd leiga.
  • Ef um er að ræða óviðráðanleg atvik svo sem veðurofsa, náttúruhamfarir eða bein tilmæli yfirvalda er endurgreitt að fullu.

Sektir vegna brota á reglum Orlofssjóðs

  • Óþrifnaður kr. 30.000
  • Óþrifinn heitur pottur/grill kr. 5.000
  • Óheimil framleiga fyrir hvern sólarhring sem leigutaki leigði húsið kr. 5.000
  • Óheimilar reykingar og notkun rafretta kr. 25.000
  • Gæludýr þar sem ekki er heimilt, varðar brottvísun og sekt kr.25.000
  • Tjón eða skemmdir á húsbúnaði allt að kr. 25.000
  • Óheimilt tjald/tjaldvagn/hjólhýsi o.s.frv. við hús kr. 25.000
  • Hleðsla rafbíla í gegnum hefðbundna heimilistengla orlofseigna kr. 25.000
  • Sein brottför án samráðs allt að kr. 10.000.
  • Mætt of snemma án samráðs allt að kr. 10.000.
  • Stjórn orlofssjóðs tekur ákvörðun um frekari sektir eftir þörfum.

Auk sekta getur brot á ofangreindu varðað útilokun frá orlofskerfi Kjalar.

Ágreinings vegna þessa má vísa til stjórnar Orlofssjóðs.

Samþykkt af stjórn Orlofssjóðs Kjalar stéttarfélags

Mars 2023