Eirhöfði 7, íbúð 404

Eirhöfði 7, íbúð 404

Íbúð 404 við Eirhöfða 7 er glæsileg orlofsíbúð í nýlegu fjölbýlishúsi á fjórðu hæð í einu áhugaverðasta þróunarsvæði Reykjavíkur. Íbúðin er um 70,5 fm með einu svefnherbergi, stofu, eldhúsi og baðherbergi með sturtu, og hentar því vel fyrir fjölskyldur eða pör sem vilja njóta borgarinnar í þægilegu umhverfi.​

Húsin að Eirhöfða 7 eru meðal þeirra fyrstu sem rísa samkvæmt nýju deiliskipulagi Ártúnshöfða, sem breytist nú úr iðnaðarhverfi í nútímalegt íbúðahverfi. Íbúðin státar af einstöku útsýni yfir Reykjavík, Esjuna, Skarðsheiði og á björtum dögum má sjá yfir til Snæfellsjökuls. Svæðið einkennist af fallegu landslagi, hásléttu og myndar góðar aðstæður fyrir útivist og göngur við Elliðaárvog.​

Eirhöfði 7, íbúð 404 Reykingar bannaðar
Eirhöfði 7, íbúð 404 Hundahald bannað
Eirhöfði 7, íbúð 404 Sjónvarp
Eirhöfði 7, íbúð 404 Net

Lýsing

Allar nánari upplýsingar um húsreglur, frágang í lok dvalar og aðgengi að þjónustu eru birtar á vef stéttarfélagsins með skýrum leiðbeiningum til leigutaka.