Umsögn BSRB vegna afnáms áminningarskyldu úr lögum.

Fyrir helgi skilaði BSRB inn formlegri umsögn í samráðsgátt stjórnvalda vegna frumvarpsdraga frá fjármálaráðherra, þar sem m.a. er lagt til að áminningarskylda verði felld brott úr lögum, auk annarra efnislegra breytinga. Umsögnin var unnin í nánu samstarfi við BHM, Kennarasamband Íslands og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga.

Í samráðsgátt stjórnvalda hafa verið kynnt drög að frumvarpi til breytinga á lögum nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, þar sem m.a. er lagt til að fella brott áminningarskyldu samkvæmt 21. gr. laganna. Í greinargerð er fjallað ítarlega um mannauðsstefnu ríkisins og markmið um eflingu mannauðs, en skortir efnislegan rökstuðning fyrir afnámi áratugagamalla réttinda ríkisstarfsmanna.

Engin greining er lögð fram sem sýnir fram á að svo víðtækar lagabreytingar séu nauðsynlegar til að bæta stjórnun eða árangur innan opinberra stofnana. Slík nálgun samræmist auk þess illa nútímalegri mannauðsstjórnun, þar sem áhersla er lögð á uppbyggingu, þróun og ábyrgð fremur en að einblína á úrræði til starfsloka.

,,Stærstu áskoranirnar þegar kemur að starfsmannamálum ríkisins eru mannekla, atgervisflótti, starfsmannavelta og veikindafjarvera. Það skýtur verulega skökku við að fyrsta verkefni ríkisstjórnarinnar sem snýr að starfsfólki ríkisins feli í sér skerðingu réttinda þeirra."

Kjölur stéttarfélag í almannaþjónustu hefur einnig sent samhljóma umsögn í samráðsgátt stjórnvalda vegna frumvarpsdraga frá fjármálaráðherra.

Málið er nú til frekari úrvinnslu innan ráðuneytisins og má gera ráð fyrir að það verði lagt fram á Alþingi að þeirri vinnu lokinni. Við þinglega meðferð skapast að nýju formlegt svigrúm til að koma á framfæri sjónarmiðum og ítarlegum athugasemdum gagnvart nefndasviði þingsins.

Lesa umsögn BSRB, BHM, Fíh og KÍ