- Kjarasamningar
- Styrkir
- Orlofsmál
- Um Kjöl
Nú stendur yfir könnunin Sveitarfélag ársins. Könnunin er hluti af samstarfsverkefni bæjarstarfsmannafélaga og stéttarfélaga innan BSRB og nær til félagsmanna sem starfa hjá sveitarfélögum. Markmið verkefnisins er að styrkja starfsumhverfi sveitarfélaganna með því að draga upp heildarmynd af starfsumhverfi og starfsánægju félagsmanna.
Við hvetjum alla sem fengu könnunina senda að taka þátt og leggja þannig hönd á plóg í baráttunni fyrir betra starfsumhverfi. Þeir sem taka þátt lenda sjálfkrafa í happdrætti þar sem sjö heppnir svarendur hljóta vinning að verðmæti 15.000 kr.
Þetta er í fjórða skipti sem könnunin er framkvæmd. Í haust verða niðurstöður aðgengilegar í rafrænu riti og veittar viðurkenningar þeim sveitarfélögum sem best hafa stuðlað að blómlegu og heilbrigðu starfsumhverfi.
Könnunin er í umsjón Mannauðssjóðsins Heklu fyrir félagsfólk sem eiga aðild að neðangreindum stéttarfélögum. Gallup sér um framkvæmd könnunarinnar, úrvinnslu og skýrslugerð. Farið verður með öll svör sem trúnaðarmál, sjá persónuverndarstefnu Gallup hér. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu verkefnisins. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu og facebook síðu verkefnisins.
Ef einhverjar spurningar vakna eða einhver kannast ekki við að hafa fengið senda könnun þá er hægt að hafa samband við Gallup á netfangið fyrirmyndar@gallup.is
Með fyrir fram þökk fyrir þátttökuna.
Við erum að vinna fyrir þig - þín skoðun skiptir máli,
Stéttarfélögin sem standa að verkefninu.
Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi
FOSS, stéttarfélag í almannaþjónustu
Kjölur, stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu
Starfsmannafélag Garðabæjar
Starfsmannafélag Hafnarfjarðar
Starfsmannafélag Húsavíkur
Starfsmannafélag Kópavogs
Starfsmannafélag Mosfellsbæjar
Starfsmannafélag Suðurnesja
Starfsmannafélag Vestmannaeyja