- Kjarasamningar
- Styrkir
- Orlofsmál
- Um Kjöl
Kæru félagar,
Til hamingju með daginn.
1. maí minnir okkur á að þau réttindi sem við njótum í dag eru ekki sjálfgefin, heldur ávöxtur samstöðu, baráttu og sameiginlegrar ábyrgðar. Dagurinn er því ekki aðeins tilefni til að líta um öxl, heldur ekki síður til að horfa fram á veginn og móta framtíðina.
Meginboðskapur dagsins er skýr: Styrkur okkar er velferð allra.
Það er hornsteinn réttláts samfélags að allir njóti öryggis, tækifæra og virðingar og að enginn verði skilinn eftir.
Þessi dagur er jafnframt áminning um mikilvægi áframhaldandi samstöðu og sameiginlegs átaks vinnandi fólks til að byggja upp réttlátara og sanngjarnara samfélag fyrir okkur öll.
Við höfum byggt upp öflugt velferðarsamfélag sem hvílir á samtryggingu og samábyrgð, og það er okkar sameiginlega ábyrgð að standa vörð um það. Um minnum við okkur á það að enn eru verk óunnin, ekki síst þegar kemur að kynjajafnrétti. Þrátt fyrir framfarir er vinnumarkaðurinn enn að verulegu leyti kynskiptur og störf kvenna njóta oftar minni viðurkenningar og lakari kjara. Slíkt er hvorki réttlátt né ásættanlegt.
Velferð allra byggist á virðingu, virðingu fyrir fólki og störfum þess, óháð kyni eða hlutverki. Hún krefst þess að við stöndum saman, hlustum hvert á annað og berjumst fyrir réttindum allra.
Samstaða er okkar sterkasta afl. Höldum áfram að byggja samfélag þar sem jöfnuður, réttlæti og velferð allra eru leiðarljós okkar.
Styrkur okkar er velferð allra.
Gleðilegan 1. maí!