- Kjarasamningar
- Styrkir
- Orlofsmál
- Um Kjöl
Herferð BSRB, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Kennarasambands Íslands lauk 31. mars sl. eftir að hafa í sameiningu staðið yfir í tíu daga.
Áform ríkisstjórnar Íslands um að afnema áminningarskyldu ríkisstarfsmanna hafa vakið harða gagnrýni. Gagnrýnendur telja að breytingin feli í sér eina alvarlegustu skerðingu á réttindum starfsfólks hins opinbera í langan tíma og muni draga verulega úr starfsöryggi.
Bent er á að áminningarskylda sé mikilvægur þáttur í réttlátri málsmeðferð þar sem starfsfólk fær tækifæri til að bæta ráð sitt. Í flestum tilvikum megi rekja vandamál til aðstæðna á vinnustað, svo sem óljósra væntinga, mikils álags eða skorts á þjálfun, og reynslan sýni að starfsfólk bregðist oft vel við slíkri endurgjöf. Afnám áminningarskyldu auki hins vegar líkur á óréttmætum og tilhæfulausum uppsögnum.
Réttindi launafólks séu ekki tilviljun heldur afrakstur langrar baráttu gegn valdaójafnvægi á vinnumarkaði. Því sé breyting sem þessi talin fordæmalaus og endurspegla hagsmuni stjórnenda frekar en starfsfólks.
Í ljósi þessa er allt launafólk hvatt til að senda stjórnvöldum áminningu og skýr skilaboð um að hafna beri afnámi áminningarskyldu og verja þannig grundvallarréttindi á íslenskum vinnumarkaði. Í dag er síðasti dagurinn til að senda stjórnvöldum áminningu.
Hér getið þið sent áminningu neðst á síðunni. Það er búið að skrifa textann – þið þurfið einungis að ýta á einn takka: