Samstaða í öllum regnbogans litum

Félagsfólk hvatt til þátttöku í Gleðigöngunni

Kjölur stéttarfélag styður réttindabaráttu hinsegin fólks og hvetur félagsfólk sitt til að taka þátt í Gleðigöngunni á laugardaginn nk.
 

Gangan leggur af stað frá Hallgrímskirkju stundvíslega klukkan 14:00. Leið hennar liggur niður Skólavörðustíg, um Bankastræti, Lækjargötu og Fríkirkjuveg. Gangan lýkur við gatnamót Fríkirkjuvegar og Skothúsvegar, en dagskráin heldur áfram um Sóleyjargötu og inn í Hljómskálagarð þar sem útitónleikar fara fram.

Gleðigangan er stærsti viðburður Hinsegin daga og mikilvægur vettvangur fyrir hinsegin samfélagið. Þar koma saman lesbíur, hommar, tví- og pankynhneigðir, trans fólk, intersex fólk og aðrir hinsegin einstaklingar ásamt fjölskyldum sínum, vinum og stuðningsfólki. Markmið göngunnar er bæði að vekja athygli á baráttunni fyrir jafnrétti og mannréttindum og að fagna þeim árangri sem náðst hefur í réttindamálum hinsegin fólks.

Í ár munu félagar innan BSRB, KÍ, ASÍ og BHM ganga saman undir kraftmiklum tónum Lúðrasveitar verkalýðsins. Við verðum nr 31 í göngunni. Kjölur stéttarfélag hvetur félagsfólk sitt til að fjölmenna og taka þátt í þessari mikilvægu samstöðu- og hátíðargöngu.

Nánari upplýsingar um Hinsegin daga og gleðigönuna má finna hér