Samkomulag við sveitarfélögin um innágreiðsu

Í samkomulaginu kemur fram að aðilar stefni á að hafa náð samningum fyrir 15. september. Þar er fjallað um skipulag viðræðna og vinnubrögð. Aðilar sammælast um að á gildistíma framlengdrar viðræðuáætlunar ríki friðarskylda.

Með hliðsjón af því svo og þess að aðilar eru sammála um að sá tími sem áætlaður var til að ræða þær umfangsmiklu kerfisbreytingar sem m.a. felast í hugsanlegri launaþróunartryggingu, breyttu fyrirkomulagi vinnutíma og fleiri atriðum hafi verið vanmetinn.

Þar sem langt er síðan gildistími síðustu kjarasamninga rann sitt skeið, eru aðilar ásáttir um að innágreiðsla að upphæð 105.000 kr. verði greidd hverjum starfsmanni miðað við fullt starf. Upphæðin greiðist hlutfallslega miðað við starfstíma og starfshlutfall á tímabilinu frá og með 1. apríl 2019 til og með 30. júní 2019. Greiðslan kemur til útborgunar 1. ágúst 2019. Það er sameiginlegur skilningur aðila að ofangreind fjárhæð sé hluti fyrirhugaðra launabreytinga og gildistíma hins endurnýjaða kjarasamnings og verði metinn sem hluti kostnaðaráhrifa hans.

Áður hafði náðs samkomulag við ríkið og Norðurorku hf um sambærilegt ákvæði. Aðrir viðsemjendur félagsins munu greiða sömu innágreiðslu og hér kemur fram.