Minnum á könnun um stöðu launafólks á Íslandi 2021

Nú þurfum við hjá Kili á ykkar hjálp að halda. Við viljum biðja ykkur að taka þátt í stuttri skoðanakönnun um stöðu ykkar. Könnunin var send þeim félagsmönnum með skráð netfang og símanúmer. Jafnframt er könnunin aðgengileg öllum félagsmönnum á mínum síðum Kjalar.

Könnunin er á vegum Vörðu – Rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins, sem var stofnuð af ASÍ og BSRB árið 2020. Könnunin er mikilvægur liður í upplýsingaöflun um stöðuna á vinnumarkaði, sér í lagi varðandi fjárhagsstöðu, stöðu á húsnæðismarkaði, heilsu og áhrifa heimsfaraldursins. Niðurstöður hennar munu hjálpa okkur við að greina stöðu launafólks á Íslandi.

Það tekur aðeins um 10 mínútur að svara könnuninni. Spurt er um húsnæði, fjárhagsstöðu, líðan, heilsufar, heilbrigðisþjónustu, sumarfrístöku, áhrifa heimsfaraldursins í starfi sem og á einkalíf.

Framkvæmd könnunarinnar er alfarið í höndum Vörðu, sem sér um hönnun spurninga, uppsetningu, framkvæmd og mun sjá um úrvinnslu á niðurstöðum.

  • Könnunin verður opin í tvær vikur og hægt er að svara henni í síma, spjaldtölvu eða í tölvu.
  • Könnunin er á þremur tungumálum, íslensku, ensku og pólsku.
  • Þrír þátttakendur vinna 30.000 kr. gjafakort fyrir þátttökuna.
  • Könnunin opnar miðvikudaginn 24. nóvember og verður lokað þriðjudaginn 8. desember.

Við þökkum þér fyrir að hjálpa okkur í þessu verkefni og teljum að niðurstöðurnar komi til með að nýtast í að móta og styðja við kröfur verkalýðshreyfingarinnar.

Mínar síður