Laust starf - verkefnastjóri svæðisdeildar Snæfellsnes- og Dalasýslu

Hefur þú áhuga á málefnum stéttarfélaga?

Kjölur stéttarfélag leitar að jákvæðum og öflugum verkefnastjóra sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni og axla ábyrgð á starfsstöð félagsins á Snæfellsnes- og Dalasýslu.

Viðkomandi þarf að vera með ríka þjónustulund, öguð vinnubrögð, búa yfir sjálfstæði í starfi, vilja til að tileinka sér nýjungar og takast á við fjölbreytt verkefni. 

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Samskipti við félagsmenn og vinnustaði þeirra
  • Símasvörun og upplýsingargjöf
  • Verkefni tengd heimasíðu, styrkja, -orlofs og félagakerfi
  • Umsjón og þátttaka á fundum
  • Önnur verkefni í samráði við yfirmenn
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun og/eða starfsreynsla sem nýtist í starfi
  • Sjálfstæði í starfi, nákvæmni og öguð vinnubrögð
  • Mjög góð færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
  • Góð tölvukunnátta er skilyrði auk áhuga á stafrænum lausnum og þróun verkferla
  • Þekking á starfsumhverfi DK hugbúnaðar er kostur
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli
Frekari upplýsingar um starfið

Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf í upphafi árs 2024.

Staðsetning er samkomulagsatriði innan starfssvæðis svæðisdeildar Snæfellsnes- og Dalasýslu.

Starfshlutfall getur verið samkomulagsatriði og eru laun samkvæmt kjarasamningi Kjalar stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Umsóknum skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf (hámark 1. bls. á íslensku) þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda til að gegna starfinu.

Umsóknarfrestur er til og með 15. október

Nánari upplýsingar um starfið veitir annagudny@kjolur.is

Sótt er um starfið í gegnum alfred.is 

Sækja um