Lausar dagar og vikur í orlofshúsunum

Eins og svo oft áður tekst ekki að úthluta öllum vikunum í orlofshúsunum. Margt kemur til eins og að flestar umsóknir eru í júlí og þar eru þá margir að sækja um sömu vikurnar, minna er um umóknir í júní  og ágúst. Einnig það að margir eru ekki búnir að skipuleggja sumarleyfið.

Um að gera að skoða á orlofshúsavefnum hvort ekki sé eitthvað laus sem gæti verið spennandi að nýta sér. Jafnframt sem við minnum á sölu á veiðikorti, útilegukorti, golfkorti og flugávísunum og ávísunum á Hótel Eddu og Fosshótel en öll þessi hótel eru víða um land. 

Félagið er með fimm hús í Munaðarnes og þar er eitthvað laust í allt sumar og einnig á Eiðum en þar erum við með þrjú hús. 

Laus er vikan 29 júní til 9 júlí á Tenerife. 

Fyrstur kemur fyrstur fær 

Njótið sumarsins!