Laun ríkisstarfsmanna hækka um 1,3%

Laun félagsmanna Kjalar stéttarfélags sem starfa hjá ríkinu verða hækkuð um 1,3 prósent að meðaltali til að bæta þeim upp launaskrið á almennum vinnumarkaði. Hækkunin er afturvirk frá 1. janúar 2017 og ætti að koma til framkvæmdar um næstu mánaðarmót. 

BSRB undirritaði samkomulag um launaþróunartryggingu opinberra starfsmanna sem eru félagar í aðildarfélögum bandalagsins í desember síðastliðnum. Kjölur stéttarfélag hefur gengið frá samkomulagi við ríkið um þessa hækkun.

Markmiðið með launaþróunartryggingunni er að tryggja að opinberir starfsmenn sitji ekki eftir á meðan launaskrið hækkar meðallaunin á almennum vinnumarkaði. Í rammasamkomulagi aðila vinnumarkaðarins frá árinu 2015 er kveðið á um að þeim sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum verði bætt það launaskrið sem verður á almenna vinnumarkaðinum umfram það sem kann að verða á opinbera markaðinum.

Aðild að samkomulaginu eiga íslenska ríkið, Samband íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborg, Alþýðusamband Íslands, BSRB og Samtök atvinnulífsins. Stór áfangi fyrir félagsmenn „Þetta er auðvitað stór áfangi fyrir okkar félagsmenn og jákvætt að þetta sé nú í höfn,“ segir Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB. „Ákvæðinu um launaþróunartryggingu er ætlað að tryggja okkar félagsmönnum að laun þeirra muni þróast á sama hátt og laun á almennum vinnumarkaði. Nú hækka launin hjá hluta af okkar fólki eftir fyrstu mælingu en svo verða gerðar tvær mælingar til viðbótar vegna áranna 2017 og 2018 sem geta haft áhrif á launin.“

Við útreikning á launaskriði er litið til þróunar á almenna markaðinum annars vegar og hjá félögum í BSRB hins vegar á tímabilinu frá nóvember 2013 til nóvember 2016. Niðurstöður útreikninga fyrir þetta tímabil sýna að hækka þarf laun félaga í aðildarfélögum BSRB sem starfa hjá ríkinu um að meðaltali 1,3 prósent. Hækkunin er afturvirk og gildir frá 1. janúar 2017. Laun félaga í aðildarfélögum Alþýðusambands Íslands sem starfa hjá ríkinu munu hækka um að meðaltali 1,6 prósent af sömu ástæðu. Mælt aftur fyrir 2017 og 2018.

Laun félagsmanna BSRB sem starfa hjá sveitarfélögum taka ekki breytingum að þessu sinni. Ástæðan er sú að laun starfsmanna sveitarfélaga hafa hækkað meira en laun á almennum vinnumarkaði á árunum 2013 til 2016. Launaþróunin verður mæld áfram og leiðrétt vegna áranna 2017 og 2018, ef tilefni reynist til, þegar þær tölur liggja fyrir.