Kosning trúnaðarmanna stendur yfir

Hlutverk trúnaðarmanns er fjölbreytt og áhugavert. Stjórn Kjalar stéttarfélags hvetur alla félagsmenn til að tilnefna og kjósa trúnaðarmann á sínum vinnustað og stuðla þannig að auknu starfsöryggi og vellíðan á vinnustað. Um er að ræða gefandi starf sem felur í sér tækifæri til að bæta við sig þekkingu og reynslu á sviði starfsmannamála. Trúnaðarmönnum býðst að sækja námskeið fyrir trúnaðarmenn sem Félagsmálaskóli alþýðu og BSRB sjá um. Að auki verða fræðsludagar sem félagið sér um.

Trúnaðarmaðurinn gætir hagsmuna þinna

Trúnaðarmaðurinn er fulltrúi stéttarfélagsins á vinnustað

Vertu með - leggjum kjöl að öflugu stéttarfélagi