Kjölur stéttarfélag hvetur til þátttöku í Kvennaverkfalli 24. október

Boðað hefur verið til kvennaverkfalls föstudaginn 24. október undir yfirskriftinni „Við mætum þar til við þurfum ekki lengur að mæta!” Kjölur stéttarfélag í almannaþjónustu skorar á félagsfólk sitt að leggja sitt af mörkum í baráttunni fyrir raunverulegu jafnrétti og að sýna samstöðu með konum og kvárum um allt land.​

Í ár eru liðin 50 ár frá fyrsta kvennafrídeginum árið 1975, þegar konur um allt land lögðu niður störf til að krefjast jafnréttis. Enn í dag er baráttan ósigruð: kynbundinn launamunur er viðvarandi, verkaskipting heima fyrir ójöfn og tölur um kynbundið ofbeldi sýna engan bata. Samtök launafólks, femínista, kvenna, hinsegin fólks og annarra standa að deginum í sameiningu — markmiðið er að sýna að jöfnuði sé ekki náð og að við munum mæta þar til þess er ekki lengur þörf.​

Kjölur hvetur félagsfólk sitt og atvinnurekendur í almannaþjónustu til að sýna samstöðu í verki, tryggja að konur og kvár geti tekið þátt án skerðingar launa, og að virða rétt fólks til að leggja niður vinnu í jafnréttisbaráttunni.

Akureyri:

  • Útifundur kl. 11:15–12:00 á Ráðhústorgi þar sem aðalræðurmaður er Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður Kjalar stéttarfélags. Ávarp hennar mun setja baráttuna í forgrunn á fundinum ásamt tónlist og samstöðu.

Stykkishólmur:

  • Samstöðufundur á Amtsbókasafninu kl. 14:00, Kjarnakonur segja frá, boðið uppá kaffi og með því, og horft á beint streymi frá baráttufundi á Arnarhóli.

Borgarnes:

  • Konur og kvár verður boðin sameiginleg rúta til Reykjavíkur í sögugöngu frá Hljómskólagarðinum og á útifundinn á Arnarhóli.

Ísafjörður:

  • Gengið verður frá Silfurtorgi að Edinborgarhúsi kl 14:00 (frekari upplýsingar á kvennaar.is.)

Patreksfjörður:

  • Kvenfélagið Sif býður því öllum í Skjaldborgarbíó kl 14:45, þar sem fram fer bein útsending frá útifundi á Arnarhóli sem hefst kl. 15:00.

Grundarfjörður:

  • Dagskráin í Grundarfirði verður tvíþætt; kl 10:00 er mæting við Sögumiðstöðina þar sem farið er í göngu, sá seinni er fundur á Kaffi 59 kl 13:30 þar sem boðið er uppá hressingu og horft á fundinn á Arnarhóli í beinu streymi

Kjölur hvetur allar konur og kvár til að taka þátt í skipulagðri dagskrá, mæta á fundi í heimabyggð sinni og láta rödd sína heyrast. Látum nærveru okkar tala — mætum þar til við þurfum ekki lengur að mæta