Kaffipásur og matur ekki á útleið

Eitt af því sem þarf að ræða á hverjum vinnustað í tengslum við styttingu vinnuvikunnar er fyrirkomulag matar- og kaffitíma. Vonandi verður ákveðið að stytta vinnuvikuna um hámarkið, 4 klukkustundir, á sem flestum vinnustöðum. Til þess að það geti gengið þarf að endurskoða matar- og kaffitíma. Í dag eru kaffihlé samtals 35 mínútur yfir daginn og teljast þau hluti af vinnutíma. Matartímar teljast hins vegar ekki hluti af vinnutímanum. Þetta þýðir að taki starfsmaður 30 mínútur í mat ætti vinnutíminn að vera til dæmis frá klukkan 8 til 16:30.

Eðlilegt að starfsmenn fái pásur

Á undanförnum árum hefur þróunin á fjölmörgum vinnustöðum þar sem unnið er í dagvinnu verið sú að starfsmenn nota launaða kaffitíma í hádeginu, taka 35 mínútur í hádegismat og vinna þannig til dæmis frá klukkan 8 til 16. Það þýðir ekki að starfsmennirnir hafi ekki fengið að taka neinar pásur fyrir eða eftir hádegi. Enda væri það skelfileg stjórnun á vinnustað að ætlast til þess að starfsmenn fái aldrei að taka pásur. Raunin hefur því verið sú að starfsmenn geta tekið hlé frá vinnu, spjallað við vinnufélaga og fengið sér kaffibolla bæði fyrir og eftir hádegi. Þau hlé hafa þó ekki verið tímasett sérstaklega, heldur taka starfsmennirnir pásur þegar það hentar miðað við þau verkefni sem unnið er að.

Við styttingu vinnuvikunnar verður fyrirkomulag líkt því sem hér er lýst tekið upp á vinnustöðum þar sem hámarks stytting verður tekin. Matar- og kaffitímar fara á flot, sem þýðir að þeir geta ekki notað matartíma til að sinna einkaerindum eða fara úr húsi þó þeir geti auðvitað farið á kaffistofu eða í mötuneytið á sínum vinnustað eins og áður. Þeir munu áfram fá kaffitíma og matarhlé, rétt eins og lýst var hér að ofan.

Endurskoðun þýðir ekki að starfsmenn fái aldrei að taka pásur. Starfsmenn geta áfram tekið hlé frá vinnu, með matarhléi eða spjallað við vinnufélaga og fengið sér kaffibolla bæði fyrir og eftir hádegi.

Það er bara þeir sem ætla hafa forræði yfir sínum matartíma þ.e. fara úr húsi vera ekki á staðnum sem stytta vinnuvikuna um 13. mín á dag. 

Sjá eftirfarandi síður

www.styttri.is

www.betrivinnutimi.is

www.samband.is

En það þarf sérstaklega að huga að þeim starfsmönnum sem eru með fasta viðveru. Þetta getur til dæmis verið starfsfólk í móttöku og fólk sem vinnur þjónustustörf af ýmsu tagi, til dæmis í grunnskólum, leikskólum og við ýmiskonar umönnun. Ræða verður sérstaklega um þessa hópa þegar starfsfólk á vinnustaðnum ræðir um útfærslu styttingar vinnuvikunnar. Þar mætti til dæmis hugsa sér að búið verði til einhverskonar kerfi til að tryggja þessu starfsfólki afleysingu til að það geti tekið eðlileg matar- og kaffihlé. Þá þarf einnig að ræða sérstaklega hópa sem vinna líkamlega erfiða vinnu og þarf eðlilega hvíld til að geta sinnt sínum störfum út vinnudaginn.