- Kjarasamningar
 - Styrkir
 - Orlofsmál
 - Um Kjöl
 
Kjölur stéttarfélag er með í samstarfi með aðildarfélögum BSRB sem semja við ríki, Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg hafa samþykkt að undirbúa atkvæðagreiðslur um verkfallsboðun. Atkvæðagreiðslurnar fari fram hjá hverju félagi fyrir sig 17. til 19. febrúar og áformaðar aðgerðir hefjist í mars.
Félagsmenn aðildarfélaga BSRB sinna fjölbreyttum störfum til að mynda á Landspítalanum og í annarri heilbrigðisþjónustu, í velferðarþjónustu, skólum, leikskólum og frístundaheimilum, í sundlaugum, íþróttahúsum og þjónustu við aldraðra og fólk með fötlun. Um 19 þúsund starfsmenn ríkis og sveitarfélaga starfa undir kjarasamningum aðildarfélaga BSRB. Félögin hafa verið kjarasamningslaus í á ellefta mánuð en kjarasamningsviðræður munu halda áfram samhliða undirbúningi verkfallsaðgerða.
Eftirtalin félög samþykktu að hefja undirbúning verkfallsaðgerða nú þegar:
Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi 
Félag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum 
Félag starfsmanna stjórnarráðsins 
FOSS, stéttarfélag í almannaþjónustu 
Kjölur – stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu 
Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna 
Sameyki – stéttarfélag í almannaþjónustu 
Sjúkraliðafélag Íslands 
Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu 
Starfsmannafélag Fjallabyggðar 
Starfsmannafélag Fjarðabyggðar 
Starfsmannafélag Garðabæjar 
Starfsmannafélag Hafnarfjarðar 
Starfsmannafélag Húsavíkur 
Starfsmannafélag Kópavogs 
Starfsmannafélag Mosfellsbæjar 
Starfsmannafélag Suðurnesja 
Starfsmannafélag Vestmannaeyja 
Landssamband lögreglumanna og Tollvarðafélag Íslands hafa lýst yfir stuðningi við aðgerðirnar, en félagsmenn þeirra hafa ekki verkfallsrétt og munu félögin því ekki boða til sambærilegra aðgerða. Þá styðja fangaverðir, sem eru í Sameyki en hafa ekki verkfallsrétt, aðgerðirnar þó þeir verði að standa utan við þær.
Atkvæðagreiðslur verða á hendi aðildarfélaga BSRB sem munu birta sínum félagsmönnum nánari upplýsingar um framkvæmd atkvæðagreiðslu og fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir eins fljótt og auðið er.