Greitt úr Kötlu félagsmannasjóði og Vísindasjóði háskólamanna

Katla félagsmannasjóður og Vísindasjóður háskólamanna.

Katla félagsmannasjóður er fyrir þá sem starfa hjá sveitarfélögum, Hjallastefnu og sjálfseignarstofnunum sem eru með ákvæði um Félagsmannasjóð í kjarasamningi, að undanskildu því félagsfólki sem greitt er af í Vísindasjóð háskólamanna.

Aðild að Vísindasjóði eiga þeir félagsmenn Kjalar stéttarfélags í almannaþjónustu sem eru með háskólapróf og taka laun samkvæmt því eftir kjarasamningi við Samband íslenskra sveitarfélaga f.h. viðkomandi sveitarfélags og sjálfseignarstofnana.

Katla félagsmannasjóður og Vísindasjóður háskólamanna eru nú búnir að greiða út.

Katla félagsmannasjóðurinn greiðir út miðað við innborgun til sjóðsins á tímabilinu 1. janúar til 31. desember árið 2025 frá vinnuveitendum. Við útgreiðslu er afdregin staðgreiðsla skatta samkvæmt öðru skattþrepi hvers ár, en félagsmenn geta lagt fram námskostnað á móti hafi þeir ekki fengið hann greiddan frá Fræðslusjóði. Að öðrum kosti telst um kaupauka að ræða.

Sjá nánar reglur um skattaleg skil á innri vef sjóðsins og á rsk.is.

Þeir sem eiga eftir að skila inn upplýsingum geta gert það áfram, en þurfa að ljúka umsókn og verða þá greiddir út við næstu útborgun.

Sjá heimsíðu Kötlu félagsmannasjóðs