Formannaráð BSRB krefst breytinga

 Formannaráð BSRB krefst þess að alþingismenn geri mikilvægar breytingar á frumvarpi fjármálaráðherra um breytingar á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, sem rætt verður seinna í dag á Alþingi.

Í ályktun sem ráðið hefur sent frá sér ítrekuð sú afstaða bandalagsins að mikilvægt sé að ljúka þessum viðamiklu breytingum í sátt við bandalög opinberra starfsmanna. Til þess þurfi að breyta frumvarpinu svo það endurspegli samkomulag um breytta skipan lífeyrismála sem þrjú heildarsamtök opinberra starfsmanna gerðu við ríki og sveitarfélög í september síðastliðnum.

Frumvarpið felur í sér afnám bakábyrgðar sjóðfélaga í A-deild LSR og Brúar sem eru yngri en 60 ára án bóta. Í samkomulaginu kemur hins vegar fram að ekki eigi að skerða réttindi sjóðfélaga heldur eigi þau að vera jafn verðmæt eftir breytingarnar og fyrir þær.

Verði ekki gerðar nauðsynlegar breytingar á frumvarpinu áður en það verður að lögum er ljóst að þessu verkefni er ólokið. Þá er ljóst að það mun hafa neikvæð áhrif á samskipti þeirra sem að samkomulaginu stóðu að ákvæði þess séu ekki uppfyllt, segir í ályktuninni.

Ályktunina má lesa í heild sinni hér að neðan.

Ályktun formannaráðs BSRB um frumvarp til laga um LSR Formannaráð BSRB krefst þess að Alþingi geri nauðsynlegar breytingar á frumvarpi til laga um LSR til samræmis við undirritað samkomulag um breytta skipan lífeyrismála sem undirritað var 19. september síðastliðinn. Lögð er áhersla á að málið sé afgreitt í sátt við heildarsamtök opinberra starfsmanna.

BSRB hefur margítrekað bent á að fyrirliggjandi frumvarp felur í sér að bakábyrgðin sé afnumin af réttindum sjóðfélaga undir 60 ára aldri án bóta. Það er þvert á markmið samkomulagsins um að réttindi núverandi sjóðfélaga í A-deild LSR og Brúar séu jafn verðmæt fyrir og eftir kerfisbreytingar.

Traust milli aðila er lykilforsenda þess að friður ríki á vinnumarkaði. Fari frumvarpið óbreytt í gegn er ljóst að verkefninu er ólokið og mun ótvírætt hafa neikvæð áhrif á samskipti þeirra sem að samkomulaginu stóðu. Reykjavík, 20. desember 2016