Kjaraviðræður þokast áfram

Kjaraviðræður BSRB við viðsemjendur hafa haldið áfram undanfarið. Viðræður hafa heldur þokast í rétta átt þó hægt hafi gengið. Enn á eftir að leysa úr stórum ágreiningsmálum á borð við styttingu vinnuvikunnar og jöfnun launa milli markaða. Kjarasamningar félagsins hafa verið lausir frá því í byrjun apríl og viðræður við viðsemjendur staðið yfir síðan. BSRB fer með samningsumboð í ákveðnum málaflokkum við ríkið og Samband íslenskra sveitarfélaga.

Í sumar náðist samkomulag um endurnýjaða viðræðuáætlun. Þar kom fram að stefnt væri að því að ná kjarasamningum fyrir 15. september, sem ljóst er að mun ekki nást. Stærsta áherslumál BSRB í kjaraviðræðunum er stytting vinnuvikunar. BSRB vill stytta vinnuvikuna í 35 stundir og enn meira hjá vaktavinnuhópum. Þær áherslur eru í samræmi við afar jákvæðar niðurstöður úr tilraunaverkefnum sem bandalagið stóð að ásamt Reykjavíkurborg annars vegar og ríkinu hins vegar. Stofnaður hefur verið sérstakur undirhópur í kjaraviðræðunum við ríkið sem hefur fjallað um mögulegar útfærslur á styttingu vinnuvikunnar. 

Loforð um jöfnun launa milli markaða Orlofsmál hafa einnig verið til umræðu í kjarasamningsviðræðunum. Þann 1. júní síðastliðinn tók gildi bann við mismunun á grundvelli aldurs. Orlofsávinnsla hefur verið tengd lífaldri hjá opinberum starfsmönnum og því þarf að breyta í þessum kjarasamningum. Þá hefur BSRB einnig lagt þunga áherslu á að samið verði um jöfnun launa milli opinbera vinnumarkaðarins og hins almenna, enda skýrt kveðið á um jöfnun launa milli markaða í samkomulagi sem gert var í tengslum við breytingu á lífeyrisréttindum opinberra starfsmanna árið 2016. Í samkomulaginu skuldbundu ríki og sveitarfélög sig til að leiðrétta launamuninn innan tíu ára.

Viðræður félagsins við Samband sveitarfélaga fara fram með öðru bæjarstarfsmannafélögum og hafa þær viðræður gengið þokkalega en ekki er byrjað að ræða launaliðinn. Ekki verður byrjað á þeim fyrr en BSRB hefur náð samkomulagi um styttingu vinnuvikunnar.