Þann 2. mars opnar fyrir pantanir á orlofseignum Kjalar fyrir sumarið

Mánudaginn 2. mars n.k. kl. 10:00 verður opnað fyrir pantanir félagsmanna vegna orlofshúsa og orlofsíbúða Kjalar fyrir sumarorlofstímabilið júní, júlí, ágúst og september 2026.
 

Úthlutun verður með sama sniði og í fyrra, fyrstur kemur - fyrstur fær.

Einnig verður opnað fyrir umsóknir í ,,orlof að eigin vali". Sótt er um það inná orlofsvefnum.


Sjá orlofsblað 2026