- Kjarasamningar
- Styrkir
- Orlofsmál
- Um Kjöl
Nú er sumarorlofstímabilið hafið, en það nær frá 15. maí til 30. september.
Gott er að hafa eftirfarandi í huga:
Orlof skal vera 30 dagar (216 vinnuskyldustundir miðað við 36 virkar vinnustundir á viku) miðað við fullt ársstarf. Ávinnsla orlofs skal vera hlutfallsleg miðað við starfshlutfall og starfstíma starfsmanns.
Yfirmaður ákveður, í samráði við starfsmann, hvenær orlof skal veitt. Yfirmanni ber að verða við óskum starfsmanns um orlof á sumarorlofstíma, ef það samræmist starfsemi stofnunarinnar.
Sé orlof, eða hluti þess, tekið utan sumarorlofstímabils að ósk yfirmanns og með skriflegri beiðni, lengist sá hluti orlofsins um 25%.
Veikist starfsmaður í orlofi telst sá tími, sem veikindum nemur, ekki til orlofs, að því tilskildu að starfsmaður tilkynni veikindin eins fljótt og auðið er og leggi fram læknisvottorð um að hann geti ekki notið orlofs.
Ef starfsmaður er kallaður til vinnu á orlofstíma, eru tvær leiðir í boði:
Greiða má starfsmanni yfirvinnu fyrir þá vinnu sem unnin er á orlofstímanum, en þá lengist orlof hans ekki.
Eða starfsmaður fær hefðbundin laun fyrir vinnu sína á orlofstímanum og orlofið lengist sem nemur þeim tíma sem unninn var í orlofi.
Nánari upplýsingar um orlof félagsmanna má finna hér.
Frí er afar mikilvægt fyrir andlega heilsu. Skipulag frísins skiptir máli. Á vefsíðu VIRK má finna gagnlegar upplýsingar um orlof, streitu, mikilvægi þess að taka sér frí og gera eitthvað skemmtilegt.
Njótið sumarsins!