Starfsmannafélag Fjallabyggðar samþykkir sameiningu við Kjöl

Fráfarandi stjórn St. Fjall. Guðbjörn, Róslaug, Hafdís, Rósa og Haukur
Fráfarandi stjórn St. Fjall. Guðbjörn, Róslaug, Hafdís, Rósa og Haukur

Á aðalfundi Starfsmannafélags Fjallabyggðar (St.Fjall) sem haldinn var fimmtudaginn 27. október í Ólafsfirði var borin upp tillaga um sameiningu félagsins við Kjöl stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu. Tillagan var samþykkt með öllum greiddu atkvæðum og tekur sameiningin þegar gildi en bókhaldsleg sameining verður um áramótin.

Félagið er deildaskipt og í kjölfar sameiningarinnar verður stofnuð St.Fjall deild innan Kjalar. Aðrar deildir félagsins eru: Akureyri, Borgarbyggð, Dala – og Snæfellsnes, Dalvíkurbyggð, Fjarðabyggð, Húnavatnssýslum, Siglufirði, Sveitarfélaginu Skagafirði og Vestfjörðum. Við sameininguna þá tekur Guðbjörn Arngrímsson fráfarandi formaður St. Fjall, sæti í stjórn Kjalar. Kjölur stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu er eitt af stærstu aðildarfélögum BSRB. 

Félagsaldur félagsmanna St. Fjall flyst að fullu til sjóða Kjalar stéttarfélags, orlofssjóðs og starfsmenntasjóðs. Til áramóta nk. verður afgreiðsla styrkja starfsmenntasjóðs og afgreiðsla orlofshúsa með óbreyttu sniði.

 

Sameining innsigluð Arna Jakobína formaður Kjalar og Guðbjörn fráf. formaður St. Fjall

 Guðbjörn Arngrímsson fráfarandi formaður kveður St. Fjall sem hann hefur stýrt frá stofnun þess árið 1983.