- Kjarasamningar
- Styrkir
- Orlofsmál
- Um Kjöl
BSRB, BHM, ASÍ, KÍ og Fíh sendu í síðustu viku frá sér sameiginlega yfirlýsingu:
"Í síðustu viku birtist í samráðsgátt stjórnvalda áform ríkisstjórnarinnar um breytingar á lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. Meðal breytinganna er ákvæði sem auðveldar stjórnendum að reka starfsfólk ríkisins.
Með þessu áformar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur að skerða einhliða réttindi launafólks. Fordæmalaust er að stjórnvöld taki einhliða ákvörðun um grundvallaréttindi vinnandi fólks án samráðs við verkalýðshreyfinguna. Nú bætist þetta við fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar af sama toga um skerðingu atvinnuleysistrygginga sem og skerðingu réttinda örorku- og ellilífeyrisþega í lífeyrissjóðum.
Grunnstoð íslenska vinnumarkaðsmódelsins er náið samráð og samvinna milli aðila vinnumarkaðsins og stjórnvalda um öll þau mál er snúa að kjörum launafólks. þetta módel er undirstaða sterks vinnumarkaðar á Íslandi og velferðarsamfélagsins og er lykilatriði af farsæld þeirra verkefna sem unnin eru á vettvangi ríkisins.
Með þessum áformum afhjúpar ríkisstjórnin þekkingar- og skeytingarleysi sitt á mikilvægi samstarfs við aðila vinnumarkaðsins.
Íslensk verkalýðshreyfing hafnar þessum vinnubrögðum og áformum og mun verjast skerðingum á réttindum launafólks af hörku."
Undir þetta rita :
Finnbjörn A. Hermannsson forseti ASÍ
Helga Rósa Másdóttir formaður Fíh
Magnús Þór Jónsson formaður KÍ
Kolbrún Halldórsdóttir formaður BHM
Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB