- Kjarasamningar
- Styrkir
- Orlofsmál
- Um Kjöl
Í ár mun félagið verja allt að kr. 4.500.000 kr. í „Orlof að eigin vali.“ Til úthlutunar verða 150 slíkir styrkir, hver að upphæð kr. 30.000, og er styrkloforðum úthlutað í kjölfar umsókna.
Við úthlutun verður tekið tillit til þess hvort félagsmaður hefur áður fengið úthlutuðu orlofi að eigin vali og félagsaldurs. Einungis er hægt að sækja um rafrænt á orlofsvef félagsins á tímabilinu 2.-15. maí.
Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvu eða eru í vandræðum með að sækja um í gegnum orlofsvefinn geta fengið aðstoð á skrifstofum félagsins. Eftirfarandi reglur gilda um fyrirkomulag „Orlofs að eigin vali“:
• Greitt er fyrir gistingu, t.d. hótel, gistihús og tjaldstæði.
• Greitt er vegna leigu á hjólhýsi, fellihýsi eða tjaldvagni.
• Greitt er vegna hvala- og fuglaskoðunar, skipulagðra hópferða, hestaferða og siglinga.
• Greitt er vegna fargjalda í flugi, ferða með rútu eða ferju.
• Greitt er vegna kostnaðar við skipulagðar gönguferðir með viðurkenndum ferðaþjónustuaðilum. Ekki er greitt vegna:
• Ekkert greitt fyrir orlofshús sem leigð eru af orlofsvef Kjalar stéttarfélags og annarra stéttarfélaga.
• Ekki er greitt fyrir flugávísanir eða fluggjafabréf.
• Ekki er hægt að framvísa kvittunum fyrir matarútgjöldum, bensíni og/eða almennum ferðakostnaði.
• „Orlof að eigin vali“ gildir fram til 20. desember á úthlutunarári. Það þýðir að þeir sem fá úthlutað þurfa að framvísa reikningum fyrir þann tíma til að fá endurgreitt. Orlofsávísun gildir eingöngu fyrir orlofsdvöl á almanaksárinu 2024. Dregnir verða 18 punktar af félagsmönnum við úthlutun. Greiðsla styrksins fer fram eftir að ferðalagi lýkur en félagsmenn þurfa að framvísa reikningi fyrir dvöl eða ferð. Senda skal reikninga vegna „Orlofs að eigin vali“ á kjolur(hjá) kjolur.is og er mikilvægt að skrá inn réttar upplýsingar á Mínar síður, bankareikning og tengiliðaupplýsingar.
Sótt er um "orlof að eigin vali" á orlofssíðu félagsins Sækja um