Yfirlýsing stjórnvalda vegna kjarasamninga BSRB

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB

Við gerð kjarasamninga við aðildarfélög BSRB 9. mars síðastliðinn urðu stjórnvöld og BSRB sammála um að stjórnvöld beiti sér fyrir framgangi verkefna er varða almenna velferð barnafjölskyldna í landinu og launajafnrétti með endurmati á launum kvennastétta.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hefur af þessu tilefni lagt fram yfirlýsingu ríkisstjórnar sem samþykkt var á ríkisstjórnarfundi 12. mars síðastliðinn. Í yfirlýsingunni er tekið fram að ríkisstjórnin muni með vísan til áherslna sem fram komu við kjarasamningsgerðina setja af stað vinnu við heildarendurskoðun á stuðningi við barnafjölskyldur og endurmati á störfum kvenna.

„Þegar við tökum ákvarðanir um framþróun stuðningskerfa okkar er nauðsynlegt að geta byggt það á ítarlegum greiningum og gögnum,“ segir Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra. „Við erum að fara af stað með nauðsynlega vinnu annars vegar í þágu barnafjölskyldna í landinu og hins vegar endurmati á störfum kvenna. Unnin verður greining á stuðningi við barnafjölskyldur undir forystu fjármála- og efnahagsráðherra. Þá mun ég skipa starfshóp sem mun leggja fram tillögur að aðgerðum til að útrýma launamun sem stafar af kynskiptum vinnumarkaði og vænti ég þess að fá tillögur til baka fyrir lok árs 2021,“ segir Katrín.

Undir þetta tekur Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB. „Meginástæðan fyrir launamuni kynjanna er hversu kynskiptur vinnumarkaðurinn er. Til að útrýma megi þeim launamun þarf fyrst að greina stöðuna og í kjölfarið endurmeta verðmæti þessara mikilvægu starfa þar sem konur eru í meirihluta,“ segir Sonja.

„Markmiðið með barnabótakerfinu er að jafna tekjur og brúa bilið milli þeirra tekjulægri og þeirra sem hafa meira milli handanna. Kerfið hefur að meginstofni til verið óbreytt í fjölda ára og því er mikilvægt að greina stuðning til barnafjölskyldna með heildstæðum hætti og endurmeta með hliðsjón af þörfum nútímafjölskyldna,“ segir Sonja.

Yfirlýsing í heild sinni