- Kjarasamningar
- Styrkir
- Orlofsmál
- Um Kjöl
Um fimmtíu trúnaðarmenn Kjalar stéttarfélags tóku þátt í trúnaðarmannafræðslu félagsins sem fram fór dagana 25.–27. mars í Hofi á Akureyri. Fræðslan stóð yfir í þrjá daga og bauð upp á fjölbreytta dagskrá þar sem áhersla var lögð á kjaramál, réttindi starfsfólks, félagið og persónulega færni trúnaðarmanna.
Fræðslunni var formlega ýtt úr vör á miðvikudegi af Örnu Jakobínu Björnsdóttur, fráfarandi formanni Kjalar. Fyrsti dagskrárliðurinn fjallaði um almennan bótarétt og fæðingarorlof í umsjón Regínu Bjarkar Sigurðardóttur, verkefnastjóra hjá Vinnumálastofnun. Í kjölfarið fóru Arna Jakobína og Anna Guðný Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Kjalar yfir stöðu kjaramála og undirbúning aðalfundar.
Á fimmtudeginum var haldið áfram með fræðslu um kjaramál tengd ráðningarsamningum, áminningum, uppsögnum og starfslýsingum, að þessu sinni í samstarfi við Huldu Guðmundsdóttur, formanns Kjalar. Eftir hádegi tóku við vinnustofur þar sem fjallað var um styrkleika og gildi undir leiðsögn Guðrúnar Arngrímsdóttur og Hrafnhildar Reykjalín frá Sjálfsrækt. Að degi loknum var haldinn aðalfundur Kjalar og kvöldverður þar sem þátttakendur hittust og höfðu gaman.
Fræðslunni lauk á föstudegi með erindum um komandi trúnaðarmannakosningar, kynnt af Þóru Sonju Helgadóttur, verkefnastjóra og með kynningu frá Tómasi Bjarnasyni hjá Gallup um niðurstöður verkefnisins Sveitarfélag ársins og aðferðafræði kannana.
Að lokinni dagskrá sleit Hulda Guðmundsdóttir nýr formaður Kjalar fræðslunni áður en trúnaðarmenn snæddu hádegisverð og héldu heim á leið. Samkvæmt þátttakendum einkenndist fræðslan af góðum umræðum, fræðandi erindum og jákvæðum samskiptum sem styrkja starf trúnaðarmanna á vinnustöðum um allt land ,,alltaf jafn gaman að hittast og bera saman bækur og heyra hvað er að gerast hjá öðrum".