Sveitarfélag ársins, taktu þátt!

Kæru bæjarstarfsmenn, nú fer að styttast í að könnunin um Sveitarfélag ársins ljúki en hún verður opin fram til loka mánaðarins.
Enn vantar þó svör og því viljum við hvetja allt félagsfólk okkar sem vinnur hjá sveitarfélögum til að gefa sér stutta stund og taka þátt, enda skiptir hvert svar máli og hjálpar til við að varpa ljósi á starfsumhverfi og líðan starfsfólks í sveitarfélögum.
 
👉 Sveitarfélag ársins – smelltu hér til að taka þátt í Sveitarfélagi ársins  Taka þátt
 
Til að taka þátt þarftu einungis að slá inn kennitöluna þína. Ef þú ert félagsmaður í einu af bæjarstarfsmannafélögum BSRB og starfar hjá sveitarfélagi geturðu tekið þátt í könnuninni. Sjö heppnir svarendur verða dregnir út og fá 15.000 krónur í vinning, sem gefur enn fleiri ástæður til að taka þátt. Ef þú færð skilaboðin „Þú hefur þegar lokið við að svara þessari könnun. Þakka þér kærlega fyrir þátttökuna.“ þá hefur þú þegar svarað í gegnum tölvupóst sem gallup sendi á alla og við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna. 
 
Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu og facebook síðu verkefnisins.
Ef þú hefur einhverjar spurningar er þér velkomið að hafa samband Gallup á netfangið fyrirmyndar@gallup.is
 
Við hvetjum alla sem eiga eftir að svara til að nýta tækifærið áður en könnuninni lýkur – þitt framlag skiptir máli.