Starfsmannafélag Dala og Snæfellssýslu samþykkir sameiningu við Kjöl

Fráfarandi stjórn: Frá vinstri, Helga, Lilja, Kristjana, Guðrún Birna á myndina vantar Kristínu, Aða…
Fráfarandi stjórn: Frá vinstri, Helga, Lilja, Kristjana, Guðrún Birna á myndina vantar Kristínu, Aðalstein og Jófríði

Á aðalfundi Starfsmannafélags Dala og Snæfellssýslu (SDS) sem haldinn var í kvöld, fimmtudaginn 21. október í Grundarfirði og í fjarfundi var borin upp tillaga um sameiningu félagsins við Kjöl stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu. Tillagan var samþykkt með öllum greiddu atkvæðum og tekur sameiningin þegar gildi en bókhaldsleg sameining verður um áramótin.

Kjölur stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu er eitt af stærstu aðildarfélögum BSRB. Félagið er deildaskipt og í kjölfar sameiningarinnar verður stofnuð SDS deild innan Kjalar. Aðrar deildir félagsins eru á Dalvík, Siglufirði, Akureyri, í Skagafirði, Húnavatnssýslum og Borgarfirði. Við sameininguna þá tekur Helga Hafsteinsdóttir fráfarandi formaður SDS, sæti í stjórn Kjalar en SDS-deild er tryggt sæti á lista til stjórnar Kjalar stéttarfélags samkvæmt lögum félagsins.

Félagsaldur félagsmanna SDS flyst að fullu til sjóða Kjalar stéttarfélags, orlofssjóðs og starfsmenntasjóðs. Til áramóta nk. verður afgreiðsla styrkja starfsmenntasjóðs og afgreiðsla orlofshúsa SDS með óbreyttu sniði.

Hluti fundarmanna en fundurinn var bæði stað og fjarfundur og alls voru 48 manns.

 

Að mörgu var að hyggja fundarstjóri og tæknistjóri fundarins.

 Arna Jakobína, formaður Kjalar og Helga fráfarandi formaður SDS

 Grundarfjörður

Hellissandur

 

S