Samið fyrir starfsmenn sveitarfélaga og verkfalli þeirra aflýst

Arna Jakobína Björnsdóttir formaður Kjalar og Helga Jónsdóttir, ríkissáttasemjari  að hefja undirrit…
Arna Jakobína Björnsdóttir formaður Kjalar og Helga Jónsdóttir, ríkissáttasemjari að hefja undirritun kjarasamnings við Samband sveitarfélaga um miðnætti 9 mars.

Samninganefnd BSRB gagnvart Sambandi íslenskra sveitararfélaga, fyrir hönd 14 aðildarfélaga BSRB, skrifaði rétt eftir miðnætti undir nýjan kjarasamning við samninganefnd Sambandsins með fyrirvara um samþykki félagsmanna. Samningurinn nær til 7000 félagsmanna sem starfa hjá sveitarfélögunum og gildir frá 1. apríl 2019 til 31.mars 2023.
Boðum verkföllum sem áttu að hefjast á miðnætti hefur fyrir vikið verið aflýst.
Meðal helstu atriða kjarasamningsins er:

  • Stytting vinnuvikunnar sem hefur um árabil verið eitt af helstu baráttumálum BSRB. Samkomulagið felur í sér miklar lífsgæðabreytingar og er um tímamóta samkomulag að ræða
  • Laun hækka í samræmi við lífkjarasamninginn svokallaða
  • Stofnun Félagsmannasjóðs sem felur í sér 80 þúsund króna árlega greiðslu til félagsmanna
  • 30 daga orlof fyrir alla Hinn nýi kjarasamningur verður kynntur félagsmönnum á næstu dögum.