Launafólk sýnir samstöðu með almenningi í Palestínu 15. janúar

Mánudaginn 15. janúar verða 100 dagar liðnir frá upphafi núverandi hernaðaraðgerða Ísraela á hendur Palestínumönnum á Gaza, sem hófust í kjölfar árasar Hamas-samtakanna 7. október. Á þessu tímabili hefur her Ísraels drepið yfir 30.000 íbúa Palestínu, þar á af 12 - 15.000 börn, rústað nauðsynlegum innviðum og hrakið nær alla íbúa Gaza á flótta á mjög takmörkuðu landsvæði sem hefur verið í herkví sl. 17 ár.

Af því tilefni hafa heildarsamtök og félög launafólks ákveðið sýna samstöðu með því að flagga palestínska fánanum. Verður fáninn dreginn að húni kl. 12:00 á hádegi. Verkalýðshreyfingin er hreyfing lýðræðis, mannréttinda og friðar á alþjóðavísu og fjöldi systursamtaka okkar um gervallan heim beita nú einnig afli sínu til að binda enda á hörmungarnar.

Ekkert útlit er fyrir hlé á núverandi árásum, auk þess sem spennan eykst á vesturbakkanum dag frá degi. Með þessari táknrænu aðgerð, þegar 100 dagar eru liðnir frá upphafi átakanna vilja samtökin sýna almenningi í Palestínu stuðning auk þess sem við skorum á íslensk stjórnvöld að beita sér af auknum þunga í þágu lausnar á átökunum, á hvern þann hátt sem mögulegt er. Lestu meira á bsrb.is