- Kjarasamningar
- Styrkir
- Orlofsmál
- Um Kjöl
Boðað hefur verið til kvennaverkfalls föstudaginn 24. október undir yfirskriftinni „Við mætum þar til við þurfum ekki lengur að mæta!” Kjölur stéttarfélag í almannaþjónustu skorar á félagsfólk sitt að leggja sitt af mörkum í baráttunni fyrir raunverulegu jafnrétti og að sýna samstöðu með konum og kvárum um allt land.
Í ár eru liðin 50 ár frá fyrsta kvennafrídeginum árið 1975, þegar konur um allt land lögðu niður störf til að krefjast jafnréttis. Enn í dag er baráttan ósigruð: kynbundinn launamunur er viðvarandi, verkaskipting heima fyrir ójöfn og tölur um kynbundið ofbeldi sýna engan bata. Samtök launafólks, femínista, kvenna, hinsegin fólks og annarra standa að deginum í sameiningu — markmiðið er að sýna að jöfnuði sé ekki náð og að við munum mæta þar til þess er ekki lengur þörf.
Kjölur hvetur félagsfólk sitt og atvinnurekendur í almannaþjónustu til að sýna samstöðu í verki, tryggja að konur og kvár geti tekið þátt án skerðingar launa, og að virða rétt fólks til að leggja niður vinnu í jafnréttisbaráttunni.
Akureyri:
Stykkishólmur:
Samstöðufundur á Amtsbókasafninu kl. 14:00, Kjarnakonur segja frá, boðið uppá kaffi og með því, og horft á beint streymi frá baráttufundi á Arnarhóli.
Borgarnes:
Félagsfólki verður boðin sameiginleg rúta til Reykjavíkur í sögugöngu frá Hljómskólagarðinum og á útifundinn á Arnarhóli.
Ísafjörður:
Kjölur hvetur allar konur og kvár til að taka þátt í skipulagðri dagskrá, mæta á fundi í heimabyggð sinni og láta rödd sína heyrast. Látum nærveru okkar tala — mætum þar til við þurfum ekki lengur að mæta