Aðalfundur félagsins er þann 26. mars nk.

Núverandi kjörtímabil stjórnar Kjalar er að renna sitt skeið og því er auglýst eftir tilnefningum vegna kjörs í trúnaðarstöður félagsins fyrir tímabilið 2026 til 2029, en kosning mun fara fram áður en aðalfundur verður haldinn. Niðurstöður liggja fyrir sólarhring fyrir aðalfund félagsins sem verður haldinn þann 26 mars nk.

Í 7. gr. laga félagsins segir:

"Stjórn félagsins skal skipuð tíu fullgildum félögum, formanni og níu meðstjórnendum, auk tveggja til vara. Stjórnarmenn skulu kosnir til þriggja ára í senn. Formann skal kjósa sérstaklega. Stjórnin kýs úr sínum hópi varaformann og ritara . Heimilt er stjórn að skipa undirnefndir vegna sérverkefna sem stjórn hefur á borði sínu".

  1. gr.

"Trúnaðarmannaráð gerir tillögu um stjórnarmenn úr sínum röðum eða úr röðum félagsfólks. Við val á meðstjórnendum skal ávalt gætt að valdir séu fulltrúar frá hverri svæðisdeild. Félagar geta gert tillögu um stjórnarmenn og verða að minnsta kosti 25 félagar að standa að tillögu félaga um hvern stjórnarmann. Allar tillögur skulu vera skriflegar og berast stjórn félagsins a.m.k. þremur vikum fyrir aðalfund. Tillögum skal fylgja nafn, kennitala, starfsheiti, heimilisfang og heiti vinnustaðar þeirra sem tillaga er gerð um. Tillögum skal fylgja skriflegt samþykki þeirra sem tillaga er gerð um en að öðrum kosti telst tillaga um hann ógild".

Stjórn er samsett einum fulltrúa svæðisdeilda nema formaður sem er utan deilda. Mótframboð verða þá á móti svæðisfulltrúa þaðan sem framboðið kemur. 

Allar tillögur skulu vera skriflegar og berast stjórn félagsins í síðasta lagi kl. 12:00 þann 5. mars nk.

Fulltrúarráð hefur samþykkt lista sinn til að leggja fram til samþykktar. Alls bárust 19 tilnefningar til stjórnarkjörs í þessar 12 stöður. 

  Stjórn frá 2026 - 2029  
Formaður Hulda Guðmundsdóttir Utan deilda
Meðstjórnandi Anna Karitas Ingvarsdóttir Sighvats Skagafjarðardeild
Meðstjórnandi Baldur Magnússon FOSHún deild
Meðstjórnandi Gunnbjörn Rúnar Ketilsson STAK deild
Meðstjórnandi Gunnfríður Magnúsdóttir FOSVEst deild
Meðstjórnandi Halldóra Harðardóttir Borgarfjarðardeild
Meðstjórnandi Hólmfríður Guðlaug Jónsdóttir Dalvíkurbyggðadeild
Meðstjórnandi Hólmfríður Ósk Norðfjörð Fjallabyggðadeild
Meðstjórnandi Jófríður Magnúsdóttir SDS deild
Meðstjórnandi Sigurjón Egilsson STAF deild
Varamaður Lísa Björk Gunnarsdóttir STAK deild
Varamaður Ómar Örn Jónsson STAK deild