Á undanförnum árum hefur þróunin á fjölmörgum vinnustöðum þar sem unnið er í dagvinnu verið sú að starfsmenn nota launaða kaffitíma í hádeginu, taka 35 mínútur í hádegismat og vinna þannig til dæmis frá klukkan 8 til 16. Það þýðir ekki að starfsmennirnir hafi ekki fengið að taka neinar pásur fyrir eða eftir hádegi. Enda væri það skelfileg stjórnun á vinnustað að ætlast til þess að starfsmenn fái aldrei að taka pásur. Raunin hefur því verið sú að starfsmenn geta tekið hlé frá vinnu, spjallað við vinnufélaga og fengið sér kaffibolla bæði fyrir og eftir hádegi. Þau hlé hafa þó ekki verið tímasett sérstaklega, heldur taka starfsmennirnir pásur þegar það hentar miðað við þau verkefni sem unnið er að.
Við styttingu vinnuvikunnar verður fyrirkomulag líkt því sem hér er lýst tekið upp á vinnustöðum þar sem hámarks stytting verður tekin. Matar- og kaffitímar fara á flot, sem þýðir að þeir geta ekki notað matartíma til að sinna einkaerindum eða fara úr húsi þó þeir geti auðvitað farið á kaffistofu eða í mötuneytið á sínum vinnustað eins og áður. Þeir munu áfram fá kaffitíma og matarhlé, rétt eins og lýst var hér að ofan.