- Kjarasamningar
- Styrkir
- Orlofsmál
- Um Kjöl
Tilhlökkun að leiða félagið áfram með góðu fólki
„Eftir að hafa setið í stjórn, starfað hér á skrifstofu Kjalar á Akureyri og kynnst félaginu enn betur þá fann ég hversu áhugaverður vettvangur þetta er. Þess vegna ákvað ég að slá til og gefa kost á mér til formennsku Kjalar. Ég geri mér grein fyrir að þetta er erilssamt starf og fjölbreytt en veit líka að ég hef að baki mér mikla þekkingu og reynslu hjá starfsfólki félagsins sem og félagsfólki. Það er bæði heiður og tilhlökkun að fá að leiða félagið áfram með öllu þessu góða fólki. Samskipti við fólk eru snar þáttur í svona starfi og hvað það varðar bý ég að reynslu úr mínum fyrri störfum,“ segir Hulda Guðmundsdóttir verðandi formaður Kjalar stéttarfélags á aðalfundi félagsins þann 26. mars næstkomandi.
Hulda var eini frambjóðandinn til formennsku í félaginu og tekur við af Örnu Jakobínu Björnsdóttur sem verið hefur formaður félagins í 34 ár.
Lærði táknmáls- og fjölmiðlafræði
Hulda er fædd og uppalin í Reykjavík en hefur búið með hléum á Akureyri í 38 ár. Hún er gift Barða Þór Jónssyni og eiga þau þrjú börn á aldrinum 8 til 19 ára. Hulda er menntuð í táknmálsfræði frá Háskóla Íslands og tók hún fjölmiðlafræði sem aukagrein.
Árið 2022 kláraði Hulda einnig nám í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Áður en hún hóf nám í táknmálsfræði starfaði hún á sambýli fyrir einhverfa þar sem hún segist hafa heillast af táknmáli. Eftir háskólanámið lá leið Huldu til Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem hún starfaði í sex ár en árið 2013 hóf hún störf hjá Norðurorku á Akureyri, fyrst sem innheimtufulltrúi en síðan þjónustustjóri.
Hagsmunagæsla fyrir félagsfólk og kvennabarátta
Frá 2023 hefur Hulda verið varamaður í stjórn Kjalar og setið sem slík alla stjórnarfundi. Hún hóf störf sem verkefnastjóri á skrifstofu Kjalar á Akureyri í október síðastliðnum. Aðspurð hvort hún horfi til einhverra mála öðrum fremur sem hún vilji leggja áherslu á sem formaður Kjalar segir hún að rauði þráðurinn verði alltaf hagsmunabarátta og hagsmunagæsla í þágu félagsfólksins.
„Síðan nefni ég að halda áfram baráttunni um stöðu kvenna í þeim anda sem Arna Jakobína hefur lagt áherslu á. Þetta er baráttuefni sem stöðugt þarf að halda á lofti og ég mun leggja því lið,“ segir Hulda Guðmundsdóttir.