Heima um páskana

Á fundi Almannavarna þriðjudaginn 31. mars komu fram skýr tillmæli um að landsmenn héldu sig heima við um páskana og færi ekki í orlofshús þar sem það skapaði aukna hættu á smitdreifingu auk mögulegs álags á heilbrigðisstofnanir.

Stjórn orlofssjóðs Kjalar vilja vekja athygli á þessum tilmælunum og þá til þeirra sem þegar hafa bókað orlofshús hjá félaginu um páskana. Félagið mun endurgreiða að fullu leiguverðið. Félagið óskar að öðru leyti öllum gleðilegra páska og minnir á að það koma aftur páskar.