Umsöng BSRB, Fíh og KÍ vegna frumvarps um afnám áminningarskyldu skilað inn til Alþingis.

BSRB, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Kennarasamband Íslands leggjast alfarið gegn frumvarpi ríkisstjórnarinnar um breytingar á starfsmannalögum sem fela í sér afnám áminningarskyldu ríkisstarfsmanna. Samtökin segja tillögurnar fordæmalausa skerðingu á réttindum launafólks og krefjast þess að frumvarpið verði dregið til baka.

Í sameiginlegri umsögn gagnrýna samtökin harðlega að breytingarnar séu lagðar fram án samráðs, gagna eða haldbærrar greiningar. Þau segja áminningarskyldu vera mikilvægan öryggisventil sem tryggi vandaða málsmeðferð, rétt starfsmanna til andmæla og vernd gegn óréttmætum uppsögnum. Afnám hennar muni auka starfsóöryggi, valdaójafnvægi og hættu á geðþóttaákvörðunum stjórnenda.

Samtökin hafna þeim rökum fjármálaráðuneytisins að breytingarnar snúi að bættri mannauðsstjórnun og benda á að núverandi lög hamli ekki frammistöðumati, endurgjöf eða starfsmannasamtölum. Þá mótmæla þau því að vísað sé til Norðurlandanna sem fyrirmyndar, enda sé uppsagnarvernd þar almennt ríkari en á Íslandi.

Í umsögninni kemur einnig fram gagnrýni á að stjórnvöld ætli að spara fé með því að draga úr möguleikum starfsfólks til að leita réttar síns fyrir dómstólum. Að mati samtakanna ættu stjórnvöld frekar að leggja áherslu á fræðslu og stuðning við stjórnendur en að skerða réttindi um 30 þúsund ríkisstarfsmanna.

Að lokum vara samtökin við því að frumvarpið grafi undan trausti á vinnumarkaði og minna á að kjarasamningar þeirra renna út á næstu árum. Þau hvetja þingmenn til að hafna frumvarpinu.

Hér má lesa umsögnina í heild sinni.