- Kjarasamningar
- Styrkir
- Orlofsmál
- Um Kjöl
Árleg könnun Vörðu um stöðu launafólks á Íslandi hefur nú verið send félagsfólki í tölvupósti.
Könnun lýkur í lok ágústmánaðar.
Markmið könnunarinnar er að afla mikilvægra upplýsinga um stöðu og aðstæður launafólks. Í ár er sérstök áhersla lögð á starfsaðstæður, þar á meðal veikindi og ástæður þeirra, stöðu ungs fólks á vinnumarkaði og stöðu innflytjenda, með áherslu á inngildingu og íslenskunám.
Auk þess er spurt um fjárhagsstöðu, húsnæðismál og líkamlega og andlega heilsu. Niðurstöður könnunarinnar nýtast við að greina stöðu launafólks og styrkja hagsmunagæslu þess.
Við hvetjum allt félagsfólk sem hefur fengið könnunina í tölvupósti til að gefa sér nokkrar mínútur til að svara. Hvert svar skiptir máli og hjálpar til við að skapa betri mynd af stöðu launafólks á Íslandi.
Nánari upplýsingar um Vörðu - rannsóknarstofnun vinnumarkaðarins má finna hér