Árangurslaus fundur hjá ríkissáttasemjara

Ekki tókst að leysa þann hnút sem er á kjaraviðræðum BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga á fundi samninganefnda hjá ríkissáttasemjara í morgun. Ekki hefur verið boðað til fleiri funda að svo stöddu.

 

Að óbreyttu hefjast verkföll í fjórum sveitarfélögum þann 15. maí svo knýja megi fram sanngjarna.

Sveitarfélögin hafa þó enn tækifæri til að sjá að sér áður en verkföll hefjast. Félagar í BSRB um allt land standa saman og standa keik í þessari baráttu enda erum við að verja grundvallarrétt launafólks um sömu laun fyrir sömu störf!