1. maí - Kröfuganga og hátíðarhöld 2023

Hér má finna dagskrár yfir hátíðarhöldin á félagssvæði Kjalar stéttarfélags 1. maí 2023

Við hvetjum félagsmenn til þess að mæta og taka þátt í tilefni af verkalýðsdeginum þann 1. maí nk.

Dagskrá á Akureyri

Kröfuganga mánudaginn 1. maí
13:30 - Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið
14:00 - Lagt af stað við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar

Hátíðardagskrá í Hofi að lokinni kröfugöngu

  • Ávarp 1. maí nefndar stéttarfélaganna
  • Kristín Konráðsdóttir, félagi í Sameyki
  • Hátíðarræða - Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis
  • Kaffiveitingar að dagskrá lokinni

 

Dagskrá í Fjallabyggð

  • Boðið verður uppá létta dagskrá í sal félaganna að Eyrargötu 24b Siglufirði kl. 14:30 og 17:00
  • Kaffiveitingar

 

Dagskrá í Stykkishólmi

Dagskrá hefst kl 13:30 á Hótel Stykkishólmi

Kynnir: Dallilja Inga Steinarsdóttir,
fulltrúi Verkalýðsfélags Snæfellinga
Ræðumaður: Björg Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri SGS
- Tónlistaratriði, Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson
- Tónlistaratriði úr Tónlistarskóla Stykkishólms
- Kaffveitingar

 

Dagskrá í Grundarfirði

Dagskrá hefst kl 14:30 í Samkomuhúsinu

Kynnir: Garðar Svansson,
fulltrúi Sameykis stéttarfélags
Ræðumaður: Björg Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri SGS
- Tónlistaratriði, Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson
- Tónlistaratriði úr Tónlistarskóla Grundarfjarðar
- Kaffveitingar að hætti kvenfélagsins Gleym-mér-ei

 

Dagskrá í Snæfellsbæ

Dagskrá hefst kl 15:30 í Samkomuhúsinu 

Kynnir: Helga Hafsteinsdóttir fulltrúi Kjalar stéttarfélags
Ræðumaður: Björg Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri SGS
- Tónlistaratriði, Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson
- Tónlistaratriði úr Tónlistarskóla Snæfellsbæjar
- Kaffveitingar að hætti eldri borgara

 

Dagskrá í Borgarnesi

Kröfuganga mánudaginn 1. maí
13:30 - Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið, Sæunnargötu 2 gengið að Hjálmakletti

Hátíðardagskrá að Hjálmakletti

  • Ávarp 1. maí
  • Atriði úr Mamma mía - unglingastig Grunnskólans í Borgarnesi
  • Ræða  dagsins
  • Sigga Beinteins, Freyjukórinn
  • Internajónallinn
  • Félögin bjóða samkomugestum uppá kaffihlaðborð að fundi loknum, foreldrar og nemendur 9. bekkjar í Gb sjá um veitingarnar. 

 

Dagskrá í Búðardal

Dagskrá hefst kl 15:00 í Dalabúð

Kynnir: Sara Kristinsdóttir, stuðningsfulltrúi og félagsmaður Kjalar stéttarfélags

Ávarp: Þórunn Hulda Sveinbjörnsdóttir

Skemmtiatriði: Tónlistarskóli Auðarskóla, Selma Björnsdóttir og Svenni Þór. 

Kaffiveitar á vegum skátafélagsins í umsjón Katrínar Lilju 

 

Dagskrá á Patreksfirði

Boðið verður í bíó í Skjaldborgarbíói klukkan 16:00. Sýnd verður myndin Magnús hinn magnaði og er aðgangur ókeypis meðan húsrúm leyfir.

Dagskrá í Suðureyri

  • Kl. 14:00 Kröfuganga frá Brekkukoti
  • Kl. 14:30 Boðsund barna í Sundlaug Suðureyrar
  • Kl. 15:00 Hátíðardagskrá í Félagsheimili Súgfirðinga, en þar verður boðið upp á kaffiveitingar undir ávarpi og tónlistarflutningi.

Dagskrá í Ísafirði

Að vanda höldum við baráttudag verkalýðsins hátíðlegan með glæsilegri dagskrá.

Á Ísafirði verður safnast saman við Alþýðuhúsið og mun kröfugangan leggja af stað þaðan klukkan 14:00 í heiðursfylgd lögreglu og lúðrasveit Tónlistarskóla Ísafjarðar í fararbroddi. Gengið verður að Edinborgarhúsinu þar sem hátíðardagskrá hefst að lokinni göngu.

  • Lúðrasveit Tónlistarskóla Ísafjarðar flytur tónlist
  • Auður Alfa Ólafsdóttir heldur ræðu
  • Hjördís Þráinsdóttir og Steingrímur Rúnar Guðmundsson flytja tónlist
  • Kómedíuleikhúsið sýnir barnaleikritið Dimmalimm
  • Eyþór Bjarnason fer með gamanmál

Að lokinni hátíðardagskrá í Edinborg sér Slysavarnardeildin Iðunn um kaffiveitingar í Guðmundarbúð.

Börnum á öllum aldri verður boðið í bíó. Klukkan 14:00 og 16:00 verður barnamyndin Magnús hinn magnaði sýnd í Ísafjarðarbíói, en klukkan 20:00 verður sýnd myndin AIR: Courting a legend. Aðgangur ókeypis meðan húsrúm leyfir.