Fara í efni

Orkubú Vestfjarða ohf

Gildistími: 1. febrúar 2024 til 1.febrúar 2028. Kjarasamningurinn er kaflaskiptur á síðunni sem auðveldar þér að finna efnið sem þú leitar eftir og launatöflur.

8. Verkfæri og vinnuföt

8.1 Verkfæri

8.1.1

Starfsmenn eru eigi skyldugir að leggja sér til verkfæri nema svo sé sérstaklega um samið. 

8.2 8.2 Einkennis- og hlífðarföt

8.2.1

Starfsmönnum skal lagður til þeim að kostnaðarlausu sá hlífðarbúnaður, sem krafist er skv. Öryggisreglum, enda er starfsmönnum skylt að nota hann.

8.2.2

Hreinsun á fatnaði skv. 8,2,3 skal látinn í té starfsmanni að kostnaðarlausu tvisvar á ári. Meiri háttar viðgerðir og tjón á slíkum fatnaði skal bætt af hálfu Orkubúsins. Starfsmenn skulu fara vel og samviskusamlega með vinnufatnað og hlífðarföt.

8.2.3

Starfsmenn í vinnuflokkum Orkubús Vestfjarða og aðrir útivinnandi starfsmenn fái hlífðarsamfesting, regngalla, hlífðarskó (öryggisskó/öryggisstígvél), kuldagalla, vinnuvettlinga og annan þann öryggisfatnað sem krafist er. Vinnuveitandi sér um þvott og viðhald á þessum búnaði. Vélstjórar hjá O.V. sem vinna að vélaviðgerðum skulu eiga rétt á að fá hlífðarsamfesting og vinnuvettlinga. Starfsmaður gæti þess að fara vel með hlífðarfatnað sinn og skal nýr fatnaður eingöngu afhentur eftir umsögn viðkomandi yfirmanns. Allir starfsmenn Orkubús Vestfjarða eiga rétt á mittisúlpu, merkta O.V., sem endurnýja má eftir 3ja ára notkun, ef þurfa þykir að mati viðkomandi yfirmanns. Þegar starfsmenn fá nýjan fatnað skal þeim gamla skilað til förgunar. Er starfsmaður lætur af starfi skal hann skila öllum fatnaði merktum O.V.