Fara í efni

Orkubú Vestfjarða ohf

Gildistími: 1. febrúar 2024 til 1.febrúar 2028. Kjarasamningurinn er kaflaskiptur á síðunni sem auðveldar þér að finna efnið sem þú leitar eftir og launatöflur.

5. Ferðir og gisting

5.1 Ferðakostnaður og gisting skv. reikningi

5.1.1

Kostnaður vegna ferðalags innanlands á vegum Orkubús Vestfjarða skal að öllu jöfnu greiðast eftir reikningi, enda fylgi fullnægjandi frumgögn. Sama gildir, ef hluti vinnudags er unnin svo langt frá föstum vinnustað, að starfsmaður þarf að kaupa sér fæði utan heimilis eða fasts vinnustaðar. Í þeim tilfellum sem OV leggur starfsmönnum til fæði vegna vinnu utan fasts vinnustaðar skal sá hópur starfsmanna njóta jafnræðis óháð búsetu. Starfsmenn sem skráðir eru með ákveðinn vinnustað í ráðningarsamningi, en stunda hinsvegar jafnan vinnu í eigin heimabyggð eða nálægt heimili sínu eiga þó ekki rétt á greiðslu fæðispeninga þótt þeir séu utan skráðs vinnustaðar. Alla jafnan er það svæðisstjóri eða annar yfirmaður á viðkomandi svæði sem ákveður hvort greiddir séu fæðispeningar eða hvort starfsmaönnum sé lagt til fæði.

5.1.2

Um uppgjör ferðakostnaðar, þar með talið akstursgjald, fer eftir sömu reglum og um uppgjör yfirvinnu.

5.1.3

Félagsmenn sem kjörnir eru á þing BSRB og til annarra fundarsetu á vegum félagsins, skulu fá til þess frí á fullum launum enda sé haft samráð við viðkomandi yfirmann. 

5.2 Dagpeningar innanlands

5.2.1

Greiða skal gisti- og fæðiskostnað með dagpeningum, sé um það samkomulag og miðast greiðslur við gjaldskrá ferðakostnaðarefndar, þó þannig að:

  1. Fari starfsmaður til vinnu frá föstum vinnustað fyrir hádegi og komi til baka fyrir kl 19:30 sama dag. Þá skal greiða í fæðiskostnað samkvæmt fæðisgjaldi. Fæði í hálfan dag.
  2. Fari starfsmaður til vinnu frá föstum vinnustað eftir hádegi og komi til baka eftir kl 19:30 sama dag, þá skal greiða í fæðiskostnað samkvæmt gjaldi. Fæði í hálfan dag.
  3. Fari starfsmaður til vinnu frá föstum vinnustað fyrir hádegi og komi til baka eftir kl 19:30 sama dag þá skal greiða í fæðiskostnað samkvæmt gjaldi. Fæði í heilan dag.
  4. Þegar gist er utan fasts vinnustaðar, þá er greitt samkvæmt gjaldi. Gisting í einn sólarhring.

5.2.2

Fyrirfram skal af fyrirtæki og starfsmanni ákveðið hvaða háttur á greiðslu ferðakostnaðar skal viðhafður hverju sinni. 

5.3 Fargjöld erlendis

5.3.1

Fargjöld á ferðalögum erlendis skulu greiðast eftir reikningi, enda fylgi ávallt farseðlar eða önnur fullnægjandi gögn. 

5.4 Dagpeningar á ferðum erlendis

5.4.1

Annar ferðakostnaður á ferðalögum erlendis greiðist með dagpeningum, sem skulu fylgja ákvörðunum ferðakostnaðarnefndar ríkisins. 

5.4.2

Af dagpeningum á ferðalögum erlendis ber að greiða allan venjulegan ferðakostnað, annan en fargjöld, svo sem kostnað vegna ferða að og frá flugvöllum, fæði, húsnæði, minni háttar risnu og hvers konar persónuleg útgjöld. 

5.3 Greiðsluháttur

5.3.1

Fyrir fram skal af stofnun og starfsmanni ákveðið hvaða háttur á greiðslu ferðakostnaðar skal viðhafður hverju sinni. 

5.4.2

Þegar starfsmaður fer utan að frumkvæði vinnuveitenda og á vegum hans skulu greiðslur vegna slíks óhagræðis vera með eftirfarandi hætti: 

  • Sé brottför flugs á virkum degi fyrir kl. 10:00 eða heimkoma eftir kl. 15:00, skal starfsmaður fá greiðslu sem nemur 3 álagsstundum með 33,33% álagi.
  • Á almennum og sérstökum frídögum skal samsvarandi greiðsla nema 6 álagsstundum með 33,33% álagi.

Heimilt er að semja um frítíma í stað greiðslu ferðatíma, sbr. grein 2.5.2. 

5.4.3 Ólaunaðir frídagar á ferðum

Þurfi starfsmaður að ósk fyrirtækis að ferðast milli landa á ólaunuðum frídögum, skal hann þegar heim er komið fá frí sem samsvarar 8 dagvinnuklukkustundum fyrir hvern frídag sem þannig glatast, enda hafi ekki verið tekið tillit til þess við ákvörðun launa. Um töku þessara frídaga fer með sama hætti og ákveðið er í kaflanum um lágmarkshvíld og frítöku.

5.6 Dagpeningar vegna námskeiða o.fl

5.5.1

Dagpeningar vegna námskeiða, þjálfunar og eftirlitsstarfs greiðast eftir ákvæðum greinar 5.2 eða 5.5 fyrstu 30 dagana, en dagpeningar umfram 30 daga á sama stað skulu vera skv. grein 5.2.2. 

5.6 Heimflutningur fjarri vinnustað

5.6.1

Þegar starfsmaður vinnur fjarri föstum vinnustað skal hann eiga rétt á ókeypis flutningi í vinnutíma til og frá heimili sínu eins og hér segir:

  1. Daglega, ef vegalengd frá dvalarstað til fasts vinnustaðar eftir aðalleið er innan víð 60 km. og færð eða veður hamla ekki heimflutningum.
  2. Vikulega, ef vegalengd frá dvalarstað til fasts vinnustaðar eftir aðalleið er innan við 150 km.
  3. Hálfsmánaðarlega, ef vegalengd frá dvalarstað til fasts vinnustaðar eftir aðalleið er 151 km. eða meiri.
  4. Starfsmanni skal tryggt eigi skemmra frí en 48 klst. milli ferða.

5.6.2

Ef um einn eða tvo menn er að ræða, skal þeim á sama hátt tryggðar ferðir að og frá vinnustað/dvalarstað með ökutæki Orkubúsins eða á eigin bifreið gegn km-gjaldi.

5.6.3

Starfsmenn vinnuflokks mega semja sín á milli um að fækka heimferðum frá því sem getið er hér að framan, ef þeir hafa komið sér saman um að draga saman frí.

5.6.4

Framangreind ákvæði um ókeypis heimflutning eiga ekki við, ef fjarlægð frá dvalarstað vinnuflokks til heimilis starfsmanna er meiri en 1,5 sinnum vegalengdin frá dvalarstað vinnuflokks að heimastöð hans. Ef vegalengdin er 200 km eða meira frá dvalarstað vinnuflokks til heimastöðvar flokks skal ferðast flugleiðis, ef þess er kostur og óskað er, enda sé áætlunarflugleið þar á milli. 

5.6.5

Um heimflutning, sem ekki fellur undir ákvæðin hér að framan, skal semja hverju sinni.

5.7. Fjarvistaruppbót

5.7.1

Greiða skal fjarvistaruppbót til starfsmanna O.V. vegna tímabundinna vinnu fjarri heimili. Þannig að eftir fjarveru í 2 nætur skal greiða, sem svarar 1.0385% af mánaðarlaunum fyrir hverja nótt þar umfram.