Norðurorka hf
Fylgiskjal 2: Launatöfluauki 2024 til 2028
Launatöfluauka er ætlað að tryggja að þróun launakostnaðar félagsfólks stéttarfélaganna hjá Norðurorku, sem tekur laun skv. launatöflu kjarasamnings þessa, haldi að jafnaði í við þróun launakostnaðar sambærilegra launþegahópa á almenna vinnumarkaðnum en honum er ekki ætlað að tryggja þróun launakostnaðar einstakra starfsmanna. Launatöfluauki hefur ekki áhrif á umsamdar launahækkanir í kjarasamningum.
Samkvæmt þessu samkomulagi skal bera saman þróun á launakostnaði félagsfólks við þróun launakostnaðar sambærilegra launþegahópa á almennum markaði.
Á gildistíma kjarasamningsins skal í þrjú skipti bera saman þróun á launakostnaði skv. ofangreindu þar sem upphaf tímabils í öllum mælingum er desember 2023. Þá skal horft til þróunar tímakaups grunnlauna (vísitölu grunnlauna sambærilegra launþegahópa á almennum markaði, gefin út af Hagstofu Íslands) á tímabilinu. Auk þess skal horft til þróunar annars launakostnaðar sem samið er um í kjarasamningi og reiknast almennt til kostnaðar við kjarasamningsgerð s.s. hækkun iðgjalda í sjóði, breytinga á vinnufyrirkomulagi eða réttindum. Aðilar skulu komast að sameiginlegri niðurstöðu um upphæð launatöfluauka starfsmanna út frá:
- Meðaltali paraðra breytinga tímakaups grunnlauna að viðbættum föstum greiðslum á borð við fasta ómælda yfirvinnu og fastar aukagreiðslur viðkomandi hóps m.v. þróun vísitölu grunnlauna sambærilegra launþegahópa á almennum markaði
- Þróun annars launakostnaðar félagsfólks hjá Norðurorku, og tekur laun skv. launatöflu kjarasamnings þessa, m.v. sambærilega launþegahópa á almennum markaði
Uppgjör launatöfluauka miðast við útreikninga á liðum 1 og 2 hér að ofan milli síðasta desembermánaðar og desember 2023 og skal uppgjörið taka gildi 1. september ár hvert á tímabilinu 2025-2027.
Við mat á þróun sambærilegra launþegahópa verður litið til samsetningar félagsfólks stéttarfélaganna hjá fyrirtækinu, sem tekur laun skv. launatöflu kjarasamnings þessa, og vísitala reiknuð sem byggir á veginni þróun launa og launakostnaðar eftirtalinna stétta á almennum markaði. Hlutfall miðast við samsetningu við undirritun samnings þessa en verður endurskoðað verði veruleg breyting á samsetningu félagsfólks hjá fyrirtækinu:
| Stétt | ÍSTARF | Hlutfall |
| Tæknar og sérmenntað starfsfólk | Bálkur 3 | 13% |
| Skrifstofufólk | Bálkur 4 | 35% |
| Verkafólk | 7,8,9 og stöðutala 0,1 | 52% |
Viðmiðunartímabil og uppgjör launatöfluauka
Viðmiðunartímabil | Launahækkun tæki gildi |
desember 2023 - desember 2024 | 1.september 2025 |
desember 2023 - desember 2025 | 1.september 2026 |
desember 2023 - desember 2026 | 1.september 2027 |
Komi í ljós að mæld þróun launakostnaðar sé lakari en hjá samanburðarhópi á almennum vinnumarkaði skal starfsfólk fá bætt 80% af þeim mismun í formi launatöfluauka og kemur hann aðeins til framkvæmdar ef mismunurinn er yfir 0,5%. Sé þróunin lakari á síðasta viðmiðunartímabilinu þá fellur niður skilyrði um mismun yfir 0,5% og laun hækkuð sem nemur 90% af mældum mismun þann 1.september 2027. Verði þróunin hins vegar starfsfólki í hag skal ekkert aðhafst.
Launatöfluauka verður ráðstafað sem hækkun á grunnlaunum og föstum greiðslum starfsfólks eða eftir nánara samkomulagi aðila.
Sýnidæmi um fyrirkomulag á launatöfluauka – mat og uppgjör | ||
Samanburðarhópur á almennum markaði | Félagsfólk hjá Norðurorku | |
Vísitala launakostnaðar í desember 2023 | 100 | 100 |
Hækkun vísitölu grunnlauna samanburðarhóps skv. mati Hagstofu Íslands og vísitölu grunnlauna að viðbættum föstum greiðslum á borð við fasta ómælda yfirvinnu og fastar aukagreiðslur | 6,00% | 5,00% |
Hækkun á launakostnaði s.s. orlof, breyting á álagsprósentum o.fl. | 0,70% | 0,50% |
Vísitala launakostnaðar síðasta desember mánaðar | 106,70 | 105,50 |
Hlutfallsleg hækkun, % (106,7/105,5-1) |
| -1,14% |
Launatöfluauki (80% af mismuni) | 0,91% |
Við útreikning á launatöfluauka verður hafður sá háttur á að einn fulltrúi fyrirtækis auk eins starfsmanns SA rýni upplýsingar um launaþróun á viðmiðunartímabili í hlutaðeigandi fyrirtæki auk tveggja starfsmanna stéttarfélaganna. Vinnan fer fram á skrifstofu Norðurorku, nema aðilar komi sér saman um annað fyrirkomulag.
Aðilar skulu komast að sameiginlegri niðurstöðu um upphæð launatöfluauka starfsmanna sem taka laun skv. launatöflu kjarasamnings aðila.