Norðurorka hf
Verkfæri og vinnuföt
8.1 Verkfæri
8.1.1
Starfsmenn eru eigi skyldugir að leggja sér til verkfæri nema svo sé sérstaklega um samið.
Hlífðar, vinnu og einkennisfatnaður
8.2.1
Þar sem krafist er einkennisfatnaðar eða sérstök hlífðarföt eru nauðsynleg t.d. vinnusloppar, skal starfsmönnum séð fyrir slíkum fatnaði, þeim að kostnaðarlausu. Sama gildir um hlífðarföt vegna óþrifalegra starfa, og starfa, sem hafa óvenjulegt fataslit í för með sér.
8.2.2
Starfsmönnum skal lagður til þeim að kostnaðarlausu sá hlífðarbúnaður, sem krafist er skv. öryggisreglum, enda er starfsmönnum skylt að nota hann.
8.2.3
Hreinsun á vinnufatnaði skv. gr. 8.2.1 og 8.2.2. skal látin í té tvisvar á ári, starfsmanni að kostnaðarlausu. Meiri háttar viðgerðir og tjón á slíkum fatnaði skal bætt af Norðurorku hálfu. Starfsmenn skulu fara vel og samviskusamlega með vinnufatnað og hlífðarföt.
8.2.4
Aðilar eru sammála um að eftirfarandi atriði skulu uppfyllt þegar starfsmönnum er lagður til fatnaður:
- Fatnaður sem lagður er til af Norðurorku hf. er eign þess.
- Vinnufatnaður skal skilmerkilega merktur.
- Þar sem því verður við komið, skal vinnufatnaður skilinn eftir á vinnustað að loknum vinnudegi.
- Er starfsmaður lætur af starfi, skal hann skila vinnu-, hlífðar og einkennisfatnaði.
- Fatnaður skal lagður til eftir þörfum.
8.2.5 Vinnu- og hlífðarfatnaður; skilgreining
Stakkur, samfestingur, kuldagalli, regngalli og vinnuvettlingar eftir þörfum.