Kirkjugarðar Akureyrar og Útfaraþjónusta Akureyrar
1. Um kaup
1.1 Föst Mánaðarlaun
1.1.1
Mánaðarlaun þeirra sem gegna fullu starfi, skulu greidd samkvæmt eftirfarandi launatöflu, sjá nánar í fylgiskjali 1:
Launatafla 1: Gildir frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2025
Launatafla 2: Gildir frá 1. apríl 2025 til 31. mars 2026.
Launatafla 3: Gildir frá 1. apríl 2026 til 31. mars 2027.
Launatafla 4: Gildir frá 1. apríl 2027 til 31. mars 2028.
Mánaðarlaun hækka sem hér segir á samningstímanum:
1. apríl 2024: 23.750 kr. eða að lágmarki um 3,25% sbr. launatöflu 1.
1. apríl 2025: 23.750 kr. eða að lágmarki um 3,50% sbr. launatöflu 2.
1. apríl 2026: 23.750 kr. eða að lágmarki um 3,50% sbr. launatöflu 3.
1. apríl 2027: 23.750 kr. eða að lágmarki um 3,50% sbr. launatöflu 4.
Útgefin launatafla hverju sinni nær yfir alla launaflokka sem miðað er við í kjarasamningi þessum. Við launaflokk leggst einstaklingsbundið persónuálag í samræmi við viðeigandi ákvæði í 10. kafla samnings þessa og myndar þannig dagvinnulaun viðkomandi starfsmanns. Laun þessi eru viðmiðun vegna afleiddra launategunda, s.s. tímakaups í yfir- og dagvinnu og lífeyrisgreiðslna B-deilda opinberra lífeyrissjóða eða sambærilegra deilda slíkra sjóða.
Undir almenn ákvæði þessa kjarasamnings heyra allir þeir starfsmenn sem verða 16 ára á almanaksárinu og eldri, sem sinna skilgreindum störfum skv. starfsmati sveitarfélaga og fá laun sem starfinu fylgja.
Launatöflur 2026 og 2027 og önnur laun
1.1.1.1
Föst laun skulu greidd eftir á, eigi síðar en fyrsta dag hvers mánaðar. Beri fyrsta dag mánaðar upp á frídegi skal útborgun launa fara fram síðasta virka dag þar á undan.
Þeir starfsmenn sem við undirritun þessa samnings eru á fyrirfram greiddum launum eiga rétt á að halda því fyrirkomulagi.
1.1.2
Brot úr mánaðarlaunum reiknast þannig, að deilt er með 21,67 í mánaðarlaunin og margfaldað með fjölda almanaksdaga annarra en laugardaga og sunnudaga frá upphafi eða til loka starfstíma.
1.1.3
Þegar kjarasamningsbundnar launaflokkahækkanir verða, hækka allar kjarasamningsbundnar viðmiðanir í samræmi við það.
1.2 Eingreiðslur á samningstímanum
1.2.1
Engar eingreiðslur á samningstíma.
1.3 Röðun í launaflokka
1.3.1
Við röðun starfa í launaflokka skal miða við niðurstöðu starfsmats. Samningsaðilar eru sammála um að nota starfsmatskerfið SAMSTARF. Um nánari atriði varðandi starfsmatið, svo sem um endurmat o.fl. semja aðilar sérstaklega, sjá verklagsreglur og verkferla um starfsmatskerfið (viðauki I).
Um tengingu starfsmatsniðurstöðu við launatöflu fer samkvæmt tengitöflu í fylgiskjali II.
Hér á þessari síðu er að vinna upplýsingar um starfsmatið sem notað er að meta störf og röðun starfa í launaflokka eftir stiganiðurstöðu hvers starfs
1.4 Tímavinnukaup
1.4.1
Tímavinnukaup í dagvinnu er 0,632% af mánaðarlaunum í hverjum launaflokki og þrepi.
Við útreikning tímakaups skal jafnframt taka mið af persónuálagi viðkomandi starfsmanns, sbr. gr. 1.1.1 og 10. kafla eftir því sem við á.
| Þegar unnið er í tímavinnu skal ekki greitt vaktaálag á þær stundir sem eru utan hefðbundins dagvinnutíma heldur greidd yfirvinna. Sjá nánar leiðbeiningar vegna ráðningarfyrirkomulagsins tímabinnu í fylgiskjal 4. Glildir frá 1. nóvember 2024 Tímavinnukaup í vaktavinnu er 0,632% og tók gildi 1. maí 2021 |
1.4.2
Starfsmann skal ráða á mánaðarlaun/starfshlutfall ef reglubundin vinnuskylda hans er 20% á mánuði eða meiri. Sé reglubundin vinnuskylda hans minni og þegar um er að ræða óregluleg vinnuskil er heimilt að ráða hann í tímavinnu.
Jafnframt er heimilt að ráða í tímavinnu, óháð vinnuskyldu í eftirfarandi undantekningartilvikum:
1. Nemendum við störf í skólaleyfum og/eða með námi.
2. Lífeyrisþegum, sem vinna hluta úr starfi.
3. Starfsmönnum, sem ráðnir eru til skamms tíma vegna sérstakra árvissra álagstíma ýmissa stofnana þó eigi lengur en 2 mánuði.
4. Starfsmönnum, sem ráðnir eru til að vinna að sérhæfðum afmörkuðum verkefnum.
5. Starfsmönnum, sem starfa óreglubundið um lengri eða skemmri tíma, þó aðeins í algjörum undantekningartilvikum.
1.5 Yfirvinnukaup
1.5.1
Yfirvinna er greidd með tímakaupi, sem skiptist í yfirvinnu 1 og yfirvinnu 2. Tímakaup yfirvinnu 1 er 0,9385% af mánaðarlaunum í hverjum launaflokki og þrepi en tímakaup yfirvinnu 2 er 1,0385% af mánaðarlaunum í hverjum launaflokki og þrepi.
Greiðsla fyrir yfirvinnu skal vera með eftirtöldum hætti:
Yfirvinna 1 kl. 08.00 til 17.00 mánudaga – föstudaga.
Yfirvinna 2 kl. 17.00 til 08.00 mánudaga – föstudaga.
Yfirvinna 2 kl. 00.00 til 24.00 laugardaga, sunnudaga og sérstaka frídaga.
Tímakaup yfirvinnu 2 greiðist jafnframt fyrir vinnu umfram 38,92 stundir á viku (168,63 stundir miðað við meðalmánuð).
| Sé um fasta yfirvinnu að ræða, greiðist hún samkvæmt yfirvinnu 2 (1,0385%). Gildir frá 1. nóvember 2024. |
1.5.2
Öll vinna sem unnin er á stórhátíðardögum, sbr. gr. 2.1.4.3, greiðist með tímakaupi sem nemur 1,375% af mánaðarlaunum miðað við það launaþrep er starfsmaður tekur laun eftir. Þetta gildir þó ekki um reglubundna vinnu, þar sem vetrarfrí eru veitt skv. grein 2.6.7.
1.5.3
Forstöðumenn stofnana eiga ekki rétt á yfirvinnugreiðslum skv. tímakaupi, en skylt er að ákveða þeim sérstaka þóknun til viðbótar mánaðarlaunum þeirra, sé yfirvinna nauðsynleg vegna anna í starfi. Slíka þóknun ákveður launagreiðandi með samkomulagi við viðkomandi starfsmann og vitund starfsmannafélagsins.
1.5.4
Sé yfirvinna fjarri föstum vinnustað ekki greidd skv. tímareikningi, skal semja um þá greiðslu fyrirfram við viðkomandi starfsmann.
1.5.5
Yfirvinna skal greidd skólaliðum í grunnskólum þegar þeir sinna aðalhreingerningum.
1.5.6
Ónæði utan vinnutíma
Starfsmanni ber ekki að svara erindum tengdu starfi hans utan vinnutíma nema í neyðartilvikum.
Gefi vinnuveitandi upp símanúmer eða netfang starfsmanns og feli honum að svara erindum fyrir hönd vinnuveitanda utan vinnutíma, skal það tilgreint í starfslýsingu og fyrirfram samið um greiðslu fyrir slík verkefni.
Greinin á ekki við um stjórnendur eða starfsmenn sem hafa starfsskyldur af þessu tagi í starfslýsingu sinni og tillit hefur verið tekið til við launasetningu starfa þeirra.
| Um er að ræða verkefni sem ekki krefjast þess að starfsmaður sé á skipulagðri bakvakt. |
1.6 Álagsgreiðslur
Vaktaálag er greitt til þeirra starfsmanna sem vinna vaktavinnu, bakvaktir og aðra vinnu sem fellur utan dagvinnutímabils en er hluti vikulegrar vinnuskyldu (sbr. gr. 2.2.3.). Vaktaálag er greitt vegna afbrigðilegs og óþægilegs vinnutíma.
1.6 álagsgreiðslur - vaktaálag
1.6.2
Greiðsla fyrir bakvaktir skal reiknast af dagvinnukaupi sbr. gr. 1.4.1 með eftirtöldum hætti:
33,33% kl. 17:00 - 24:00 mánudaga - fimmtudaga
45,00% kl. 17:00 - 24:00 föstudaga
45,00% kl. 00:00 - 08:00 mánudaga
33,33% kl. 00:00 - 08:00 þriðjudaga - föstudaga
45,00% kl. 00:00 - 24:00 laugard., sunnud. og sérstaka frídaga
120,00% kl. 00:00 - 24:00 stórhátíðardaga sbr. gr. 2.1.4.3.
165,00% kl. 16:00 - 24:00 á aðfangadag og gamlársdag sbr. gr. 2.1.4.3.
165,00% kl. 00:00 - 08:00 á jóladag og nýársdag sbr. gr. 2.1.4.3
Brot úr klst. greiðist hlutfallslega. Um greiðslur fyrir útköll á bakvakt gildir gr.2.3.3.
| Grein 1.6.2 breytist á samningstíma. Ofangreint gildir frá 1. nóvember 2024. |
1.6.1
Vaktaálag reiknast af dagvinnukaupi sbr. gr. 1.4.1.Vaktaálag skal vera:
33,33% kl. 17:00 – 24:00 mánudaga - fimmtudaga
55,00% kl. 17:00 – 24:00 föstudaga
65,00% kl. 00:00 – 08:00 þriðjudaga - föstudaga
55,00% kl. 08:00 – 24:00 laugardaga, sunnudaga og sérstaka frídag
75,00% kl. 00:00 – 08:00 laugardaga, sunnudaga, mánudaga og sérstaka frídaga
120,00% kl. 00:00 – 24:00 stórhátíðardaga sbr. gr. 2.1.4.3.
165,00% kl. 16:00 – 24:00 á aðfangadag og gamlársdag sbr. gr. 2.1.4.3.
165,00% kl. 00:00 - 08:00 á jóladag og nýársdag sbr. gr. 2.1.4.3
Brot úr klst. greiðist hlutfallslega.
| Gildir frá 1. nóvember 2024. Gildir fyrir vaktavinnufólk frá 1. apríl 2023 |
1.6.3
Greiðsla fyrir bakvakt á dagvinnutímabili er 33,33% vaktaálag.
1.7 Persónuuppbót
1.7.1
Starfsmaður í 100% starfshlutfalli fær greidda persónuuppbót 1. maí og 1. desember ár hvert. Greitt skal hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma síðustu 12 mánuði fyrir greiðsludag.Hafi starfsmaður gengt hlutastarfi eða starfað hluta úr ári, skal hann fá greitt hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma.
Tímavinnumaður fær fulla persónuuppbót ef hann vinnur 1504 virkar vinnustundir. Greitt skal hlutfallslega miðað við unna tíma og starfstíma síðustu 12 mánuði fyrir greiðsludag.
Hafi starfsmaður látið af störfum á árinu vegna aldurs skal hann fá greidda persónuuppbót hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma.
Sama hlutfallsregla gildir ef starfsmaður var frá störfum vegna veikinda eftir að greiðsluskyldu vinnuveitanda lýkur eða vegna fæðingarorlofs sbr. 8. gr. laga nr. 144/2020. Sjá einnig gr. 11.1.8.
Persónuuppbót er föst fjárhæð og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum samningsins. Á persónuuppbót reiknast ekki orlofslaun.
Áunnin persónuuppbót skal gerð upp við starfslok starfsmanns.
Persónuuppbót miðað við 100% starfshlutfall á samningstímanum verður sem hér segir:
| 1. maí 2024 | kr. 57.500 |
| 1. desember 2024 | kr. 135.500 |
| 1. maí 2025 | kr. 59.500 |
| 1. desember 2025 | kr. 140.000 |
| 1. maí 2026 | kr. 62.000 |
| 1. desember 2026 | kr. 145.000 |
| 1. maí 2027 | kr. 64.000 |
| 1. desember 2027 | kr. 150.000 |