| Vinnustaður | Nafn trúnaðarmanns | Vinnuveitandi | Svæðisdeild |
| Amtbókasafn | Svala Hrönn Sveindsdóttir | Akureyrarbær | STAK deild |
| Auðarskóli Búðardalur | Sara Kristinsdóttir | Dalabyggð | Dala- og Snæfellsdeild |
| Árskógarskóli | Guðrún H Ragúels | Dalvíkurbyggð | Dalvíkurbyggðardeild |
| Árskóli | Sonja Sif Sigurðardóttir | Sveitarfélagið Skagafjörður | Skagafjarðardeild |
| Dvalar og hjúkurnarheimilið Jaðar | Beata Makilla | Snæfellsbær | Dala- og Snæfellsdeild |
| Dvalar og hjúkurnarheimilið Silfurtún | Þuríður Kristjana Bæringsdóttir | Ríkið - HSV | Dala- og Snæfellsdeild |
| Dvalarheimilið Dalbær | Gústaf Adolf Þórarinsson | Dalbær | Dalvíkurbyggðardeild |
| Dvalarheimilið Hornbrekka | Nanna Árnadóttir | Ríkið - HSN | Fjallabyggðardeild |
| Félags og skólaþjónusta Snæfellinga | Stefanía Sólborg Guðmundsdóttir | Félags og skólaþjónusta Snæfellinga | Dala- og Snæfellsdeild |
| Framkvæmdasvið Dalvíkurbyggðar | Haukur Guðjónsson | Dalvíkurbyggð | Dalvíkurbyggðardeild |
| Glerárskóli | Hermína Brynja Sigurðardóttir | Akureyreyrarbær | STAK deild |
| Grunnskóli Borgarfjarðar | Halldóra Ingimundardóttir | Borgarbyggð | Borgarbyggðardeild |
| Grunnskóli Fjallabyggðar | Hólmfríður Norðfjörð | Fjallabyggð | Fjallabyggðardeild |
| Grunnskóli Grundarfjarðar | Guðrún Lilja Magnúsdóttir | Grundarfjarðarbær | Dala- og Snæfellsdeild |
| Grunnskóli Snæfellsbæjar | Sólveig Bláfeld Agnarsdóttir | Snæfellsbær | Dala- og Snæfellsdeild |
| Grunnskóli Snæfellsbæjar Ólafsvík | Sigrún Þórðardóttir | Snæfellsbær | Dala- og Snæfellsdeild |
| Grunnskóli austan vatna og leikskólinn Tröllaborg | Alda Laufey Haraldsdóttir | Sveitarfélagið Skagafjörður | Skagafjarðardeild |
| Grunnskólinn Ísafirði | Ólöf Anna Benediksdóttir | Ísafjarðarbær | FOSVest deild |
| Grunnskólinn í Stykkishólmi | Klaudia Gunnarsdóttir | Stykkishólmsbær | Dala- og Snæfellsdeild |
| Heilsuvernd Hjúkrinarheimilið Hlíð/Lögmannshlíð | Helga Ingibjörg Jóhannsdóttir | Heilsuvermd | STAK deild |
| Hjúkrunarheimilið Fellsendi | Heiðrún Sandra Grettisdóttir | Fellsendi | Dala- og Snæfellsdeild |
| Hjúkrunarheimilið Sæborg | Áslaug Ottósdóttir | Ríið - HSN | FOSHúN deild |
| Hlíðarfjall | Hólmfríður Sara Friðjónsdóttir | Akureyrarbær | STAK deild |
| Heilsugæslan á Akureyri | Lilja Sverrisdóttir | Ríkið - HSN | STAK deild |
| Húnaskóli | Hulda Birna Vignisdóttir | Húnabyggð | FOSHúN deild |
| Höfðaskóli | Svenný Helena Hallbjörnsdóttir | Sveitarfélagið Skagaströnd | FOSHúN deild |
| Íþróttahús og sundlaug Snæfellsbæjar | Þorbjörg Höskuldsdóttir | Snæfellsbær | Dala- og Snæfellsdeild |
| Íþróttahöll - íþrottahús Giljaskóla og Síðuskóla | Birna H Bergstað Þórmundardóttir | Akureyrarbær | STAK deild |
| Íþróttamiðstöðin í Borgarbyggð | Eiður Sigurðsson | Borgarbyggð | Borgarbyggðardeild |
| Íþróttamiðstöðin Varmahlíð og nokkrir í Varmahlíðarskóla | Friðrik Þór Jónsson | Sveitarfélagið Skagafjörður | Skagafjarðardeild |
| Leikskólinn Krílakot Ólafsvík | Katarzyna Kapszukiewicz | Snæfellsbær | Dala- og Snæfellsdeild |
| Leikskólar Fjallabyggð | Thelma Guðjónsdóttir | Fjallabyggð | Fjallabyggðadeild |
| Leikskóli Húnabyggðar | Heiðbrá Hrund Kristjánsdóttir | Húnabyggð | FOSHúN deild |
| Leikskólinn Ársalir Sauðárkróki | Anna Katarzyna Szafraniec | Sveitarfélagið Skagafjörður | Skagafjarðardeild |
| Leikskólinn Birkilundur | Bogdís Una Hermannsdóttir | Sveitarfélagið Skagafjörður | Skagafjarðardeild |
| Leikskólinn Hnoðraból | Kristjana Björg Karlsdóttir | Borgarbyggð | Borgarbyggðardeild |
| Leikskólinn í Stykkishólmi | Berglind Eva Ólafsdóttir | Stykkishólmsbær | Dala- og Snæfellsdeild |
| Leikskólinn Klettaborg | Hafdís Thelma Ómarsdóttir | Borgarbyggð | Borgarbyggðardeild |
| Leikskólinn Krílakot | Una Dan Pálmadóttir | Dalvíkubyggð | Dalvíkurbyggðadeild |
| Leikskóli Snæfellsbæjar | Helga María Skúladóttir | Snæfellsbær | Dala- og Snæfellsdeild |
| Leikskólinn Sólvöllum | Gyða Rós Freysdóttir | Grundarfjarðarbær | Dala- og Snæfellsdeild |
| Norðurorka | Bylgja Rúna Aradóttir | Norðurorka | STAK deild |
| Orkubú Vestfjarða Ísafirði | Tinna Hrund Hlynsdóttir Hafberg | Orkubú Vestfjarða | FOSVest deild |
| Orkubú Vestfjarða Hólmavík | Júlíus Freyr Jónsson | Orkubú Vestfjarða | FOSVest deild |
| Orkubú Vestfjarða Patreksfirði | Viðar Örn Ástvaldsson | Orkubú Vestfjarða | FOSVest deild |
| Ráðhús og fleiri | Anna Karítas Ingvarsdóttir Sighvats | Sveitarfélagið Skagafjörður | Skagafjarðardeild |
| Ráðhús Akureyrar | Gunnbjörn Rúnar Ketilsson | Akureyrarbær | STAK deild |
| SAK | Lísa Björk Gunnarsdóttir | Ríkið - SAk | STAK deild |
| Skammtímavistun og íbúðarkjarni Lokastíg | Emma Þöll Hilmarsdóttir | Ísafjarðarbær | FOSVest deild |
| Kristnes | Hrafnhildur Inga Ólafsdóttir | Ríkið -SAk | STAK deild |
| Sundlaug Sauðárkróks | Halla Steinunn Tómasdóttir | Sveitarfélagið Skagafjörður | Skagafjarðardeild |
| Sundlaug Akureyrar | Guðmundur Örn Ingason | Akureyrarbær | STAK deild |
| Umhverfismiðstöð Akureyrarbæjar Rangárvöllum | Baldur Jóhann Björgvinsson | Akureyrarbær | STAK deild |
| Verkmenntaskólinn Á Akureyri | Íris Björk Sigurjónsdóttir | Ríkið - VMA | STAK deild |
Trúnaðarmenn Kjalar
Trúnaðarmenn – rödd starfsfólks á vinnustaðnum
Trúnaðarmaður er fulltrúi Kjalar á vinnustaðnum, einstaklingur sem samstarfsfólk kýs úr eigin röðum og stéttarfélagið skipar í kjölfarið. Trúnaðarmaður er tengiliðurinn milli starfsfólks og félagsins þar sem hann heyrir fyrstur þegar eitthvað bjátar á og verður þannig sá sem leysir úr málum á vinnustaðnum eða leitar aðstoðar hjá starfsfólki Kjalar.
Réttur starfsfólks til að kjósa sér trúnaðarmann er lögbundinn. Í V. kafla laga um kjarasamninga opinberra starfsmanna nr. 94/1986 er kveðið á um að á hverjum vinnustað þar sem að minnsta kosti fimm starfa megi kjósa einn trúnaðarmann, og séu starfsmenn fimmtíu eða fleiri má kjósa tvo. Á minni vinnustöðum, sem ekki ná þessu lágmarki, er einnig heimilt að kjósa trúnaðarmann fyrir félagssvæðið eða nokkrar stofnanir saman.
Hafir þú áhuga á velferð og réttindum á vinnustaðnum þínum, er tilvalið að kynna sér þetta efni nánar hér á síðunni.

Ef þú hefur áhuga á að taka að þér þetta hlutverk stendur þú aldrei einn. Kjölur stéttarfélag veitir trúnaðarmönnum öflugan stuðning, ráðgjöf og fjölbreytta fræðslu sem nýtist bæði í starfi og persónulegri þróun.
Trúnaðarmaður gegnir mikilvægu hlutverki á vinnustað. Hann stendur vörð um réttindi og kjör félagsfólks, veitir stuðning og er mikilvægur tengiliður milli starfsfólks, atvinnurekanda og stéttarfélagsins.
Þú þarft ekki að vera sérfræðingur í kjarasamningum eða vinnurétti til að hefja störf sem trúnaðarmaður. Mikilvægast er að hafa áhuga á fólki, réttindum þess og góðu samstarfi á vinnustað. Kjölur stendur eykur þekkinginu með fræðslu og veitir stuðning til trúnarðarmanna.
Fræðslan er unnin í samstarfi við viðurkennda fræðslu- og símenntunaraðila og er ætlað að efla trúnaðarmenn í hlutverki sínu, styrkja sjálfstraust þeirra og auka færni til að styðja félagsfólk á sem bestan hátt.
Félagsmálaskóli alþýðu geftur út handbók trúnaðarmanna sem má nálgast hér. Þar er meða annars fjallað um hlutverk, réttindi og skyldur trúnaðarmanna.
Lög um kjarasamninga opinberra starfsmanna gilda fyrir opinberra starfsmenn
Jafnframt sem lög um sáttastörf og vinnudeildur kaflinn um trúnaðarmenn gilda: Lög um sáttastörf og vinnudeilur nr. 80/1938
Í kjarasamningi er að finna viðauka sem felur í sér samkomulag um trúnaðarmenn og gildir bæði hjá sveitafélögum og ríki
VIÐAUKI 2: SAMKOMULAG UM TRÚNAÐARMENN
Samþykkt á fundi Launanefndar sveitarfélaga og viðræðunefndar bæjarstarfsmanna 31. maí 1991.
- grein Skv. þessu samkomulagi teljast þeir trúnaðarmenn í skilningi laga nr. 94/1986, um kjarasamninga opinberra starfsmanna sem eru:
1.1. kjörnir trúnaðarmenn skv. 28. gr. þeirra laga, sbr. einnig 2. gr. Þessa samkomulags
1.2. kjörnir trúnaðarmenn skv. 2. gr. þessa samkomulags
1.3. kjörnir stjórnarmenn stéttarfélaga og heildarsamtaka þeirra
1.4. kjörnir samninganefndarmenn stéttarfélaganna.
2. grein Trúnaðarmenn má kjósa fyrir svæði ef vinnustaðir uppfylla ekki fjöldaskilyrði 1. mgr. 28. gr. laga nr. 94/1986. Trúnaðarmann má kjósa fyrir hverja þrjá vinnustaði þar sem áðurnefnd fjöldaskilyrði eru ekki uppfyllt. Á þeim vinnustöðum þar sem starfsmenn vinna skv. mismunandi vinnutímakerfum, skal þrátt fyrir ákvæði 28. gr. laga nr. 94/1986, kjósa einn trúnaðarmannanna hið minnsta fyrir hvert vinnutímakerfi.
3. grein Trúnaðarmönnum skal heimilt að sækja þing, fundi og ráðstefnur á vegum stéttarfélagsins í allt að eina viku einu sinni á ári án skerðingar á reglubundnum launum.
Þeir sem kjörnir eru í samninganefnd fá leyfi til að sinna því verkefni án skerðingar á reglubundnum launum.
Í öllum framangreindum tilvikum skal tilkynna yfirmanni stofnunar með eðlilegum fyrirvara um slíkar fjarvistir.
[4. grein]2
- grein Óski annar hvor aðila eftir breytingum á samkomulagi þessu, skal hann kynna gagnaðila þær skriflega. Takist ekki samkomulag innan þriggja mánaða, getur hvor aðila um sig innan einnar viku sagt upp samkomulagi þessu með eins mánaðar fyrirvara.
Í reglum þessum er trúnaðarmaður sá sem kosin er á vinnustað, aðaltrúnaðarmaður er valinn af trúnaðarmönnum og hefur aukaskyldur gagnvart félaginu og kjörnum trúnaðarmönnum
Starfsskyldur trúnaðarmanns:
- Starfar sem tengiliður – milli félagsfólks og stjórnanda stofnananna – milli félagsfólks og stjórnar KJALAR
- Stendur vörð um réttindi og skyldur
- Gætir hagsmuna KJALAR stéttarfélags í starfi sem utan þess
- Upplýsir nýja félaga um sína stöðu
- Annast upplýsingar á vinnustað
- Tekur á móti umkvörtunum
- Leitar leiða til lausna
- Heldur vinnustaðafundi
- Fylgist með kjara- og réttindaumræðu
Starfsskyldur aðaltrúnaðarmanns:
- Starfar sem tengiliður – milli félagsfólks og stjórnanda stofnananna – milli félagsfólks og stjórnar KJALAR
- Er fulltrúi svæðisdeildar í fulltrúaráði félagsins
- Stendur vörð um réttindi og skyldur
- Gætir hagsmuna KJALAR stéttarfélags í starfi sem utan þess
- Upplýsir nýja félagsmenn um sína stöðu
- Annast upplýsingar á vinnustað
- Tekur á móti umkvörtunum
- Leitar leiða til lausna
- Heldur vinnustaðafundi
- Fylgist með kjara- og réttindaumræðu
- Boðar til fundar með trúnaðarmönnum innan sinnar starfsdeildar.
Aðaltrúnaðarmaður sér jafnframt til þess að hlutverki svæðisdeildar sé fullnægt með eftirfarandi:
- Að afla upplýsinga fyrir aðalstjórn til framfara hverju sinni.
- Að dreifa upplýsingum og aðstoða félagsmenn.
- Að funda þegar þurfa þykir um sérmál svæðisins og koma tillögum til aðalstjórnar.
- Að gera tillögur til aðalstjórnar um fjárframlög til svæðisdeildarinnar.
- Að halda fundi árlega með þátttöku stjórnar/ starfsmanna.
- Að sjá um skemmtiferðir/árshátíðir.
- Að stuðla að samheldni og samvinnu meðal félagsmanna
- Að vinna að þeim hagsmunamálum sem upp koma hverju sinni
Skyldur félagsins gagnvart trúnaðarmönnum og aðaltrúnaðarmönnum
- Heldur námskeið, fundi
- um félagið
- um kjarasamninga
- um lög og reglugerðir
- um sjálfstyrkingu, tjáningu, samningatækni
- Aðstoðar við þau mál sem upp koma
- Upplýsa um stöðu kjara-og réttindamála
- Samantektir og aðstoð frá skrifstofu
Trúnaðarmenn eru brúin á milli félagsfólks og Kjalar stéttarfélags. Starf þeirra er einn af mikilvægustu hlekkjunum í því að tryggja gott samstarf, öryggi og réttindi á vinnustöðum. Þar sem hlutverkið getur verið bæði fjölbreytt og krefjandi, leggur Kjölur ríka áherslu á vandaða og samfellda fræðslu.
Markmið Kjalar með fræðslunni:
- Valdefling og stuðningur: Að búa trúnaðarmenn út með þekkingu, tæki og tól til að takast á við dagleg verkefni af öryggi.
- Fagleg sérþekking: Að bjóða upp á hágæða menntun í samstarfi við viðurkennda símenntunar- og fræðsluaðila.
- Sterkara bakland: Að tryggja að trúnaðarmaðurinn standi aldrei einn, heldur hafi ávallt stuðning stéttarfélagsins á bak við sig.
Af hverju er trúnaðarstarfið svona mikilvægt?
- Öruggari vinnustaðir: Trúnaðarmenn gæta þess að samningar séu virtir og vinna að bættu vinnuumhverfi fyrir alla.
- Góð upplýsingamiðlun: Þeir miðla mikilvægum upplýsingum á milli starfsfólks og stjórnenda, sem dregur úr ágreiningi og eykur traust.
- Árangur til framtíðar: Öflugt trúnaðarmannastarf skilar sér í hæfara og ánægðara starfsfólki, sem er grunnurinn að árangri á öllum vinnustöðum.
Trúnaðarmenn sem sækja fundi eða fræðslu á vegum Kjalar og þurfa að ferðast fá greiddan ferða- og dvalarkostnað samkvæmt reglum félagsins. Hér að neðan má sjá helstu atriði þeirra.
Trúnaðarmenn skulu ferðast með eins hagkvæmum hætti og mögulegt er.
Nýta skal bílaleigubíl þar sem því verður við komið. Þegar fleiri en einn trúnaðarmaður á erindi á sama stað skulu þeir samnýta bíl eins og kostur er.
Þar sem ekki er hægt að nýta bílaleigubíl greiðir félagið ferðakostnað sem nemur 60% af gjaldskrá ferðakostnaðarnefndar ríkisins.
Kjósi trúnaðarmaður að ferðast á eigin vegum vegna persónulegra aðstæðna greiðir félagið 20% af gjaldskrá ferðakostnaðarnefndar ríkisins.
Gisting
Geti trúnaðarmaður ekki ferðast fram og til baka samdægurs sér félagið honum fyrir gistingu. Tilkynna þarf skrifstofu Kjalar um þörf fyrir gistingu með að minnsta kosti 10 daga fyrirvara.
Fæði
Þurfi trúnaðarmaður að dvelja lengur en sex klukkustundir að heiman sér félagið honum fyrir fæði eða greiðir fæðiskostnað sem nemur hálfum dagpeningi samkvæmt viðmiðum RSK.
Annað
Í þeim tilvikum sem reglurnar ná ekki til skal semja sérstaklega um greiðslur við skrifstofu Kjalar áður en ferð er farin.
Greiðslur fara fram um næstu mánaðamót eftir að viðburður hefur átt sér stað.
Gildistaka
Reglurnar voru samþykktar í stjórn Kjalar 10. desember 2024 með breytingum sem tóku gildi 1. janúar 2026.
Kjör trúnaðarmanna fer fram á tveggja ára fresti. Reglulegt kjörtímabil stendur frá september til október 2026 og næstu reglulegu kosningar verða haldnar árið 2028.
Heimilt er að kjósa trúnaðarmann hvenær sem er á vinnustað þar sem ekki hefur áður verið kjörinn trúnaðarmaður. Ef trúnaðarmaður lætur af störfum á vinnustaðnum áður en kjörtímabili lýkur skal einnig kjósa nýjan trúnaðarmann í hans stað.

Neðst á síðunni má finna eyðublöð og gögn sem hægt er að hlaða niður og prenta út.
Framkvæmd kjörs trúnaðarmanns
Undirbúningur kosninga
Fráfarandi trúnaðarmaður eða skipaður umboðsmaður sér um undirbúning og framkvæmd kosningar.
Umboðsmaður:
- Auglýsir kjörið á áberandi stað á vinnustað og tilgreinir nafn sitt sem umsjónaraðila,
- Tekur við skriflegum tilnefningum frá félagsfólki,
- Aflar skriflegs samþykkis þeirra sem gefa kost á sér,
- Auglýsir kosninguna með að minnsta kosti 10 daga fyrirvara og birtir nöfn frambjóðenda,
- Útbýr lokaðan kjörkassa eða sér um rafræna kosningu ef hún er notuð.
Framkvæmd kosningar
Ef aðeins einn frambjóðandi gefur kost á sér telst hann sjálfkjörinn. Umboðsmaður getur þó ákveðið að kosning fari fram þrátt fyrir að aðeins einn sé í framboði.
Við kosningu:
- Hver kjósandi ritar nafn eins frambjóðanda á atkvæðaseðil,
- Seðillinn er brotinn saman og settur í kjörkassa,
- Seðlar með fleiri en einu nafni teljast ógildir.
Umboðsmaður sér um talningu atkvæða og öllum sem höfðu kosningarétt er heimilt að fylgjast með talningunni.
Sá sem hlýtur flest atkvæði er kjörinn trúnaðarmaður. Ef atkvæði falla jöfn ræður hlutkesti.
Að lokinni kosningu
Þegar kosningu er lokið fyllir umboðsmaður út rafræna tilkynningu um kjör trúnaðarmanns.
Ef ekki tekst að kjósa trúnaðarmann
Berist tilkynning um kjör ekki fyrir 10. október hefur stjórn Kjalar heimild til að skipa trúnaðarmann án kosningar og tilkynnir það félagsfólki á viðkomandi vinnustað.
Stjórn Kjalar leggur þó ríka áherslu á að trúnaðarmenn séu kjörnir af samstarfsfólki sem eru félagar Kjalar stéttarfélag og lítur því á skipun stjórnar sem neyðarúrræði.
Skjöl
- Ítarlegar leiðbeiningar
- Einfaldar leiðbeiningar
- Auglýsing um kjör trúnaðarmanns
- Tilkynning um kjör trúnaðarmanns
Nauðsynlegt er að skrá sig á námskeiðið í síðasta lagi
Sjá eyðublað hér neðar
