Fara í efni

Kjarasamningur við ríkið

Gildistími: Frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028. Kjarasamningurinn er kaflaskiptur á síðunni sem auðveldar þér að finna efnið sem þú leitar eftir. Ásamt stofnanasamningum við heilbrigðisstofnanir og framhaldsskóla á félagssvæði Kjalar

Inngangur

/cdn/documents/Logo-allskonar-taknmerki-og-myndir/Skjaldarmerki-i-JPG-skjamidlar.jpg?v=1788087680

Kjarasamningstexti þessi er unninn í samvinnu Kjara- og mannauðssýslu fjármála- og efnahagsráðuneytisins og Kjalar - stéttarfélags í almannaþjónustu og byggir á kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs annars vegar og Kjalar – stéttarfélags í almannaþjónustu frá 1. apríl 2019 með eftirfarandi breytingum:

Samkomulag um breytingar of framlengingu á kjarasamningi aðila dags. 31. mars 2023.
Gildistími 1. apríl 2023 – 31. mars 2024.
Samkomulag um breytingar of framlengingu á kjarasamningi aðila dags. 13. júní 2024.
Gildistími 1. apríl 2023 – 31. mars 2024.

Telst bókun 6 úr samkomulagi aðila frá 13. júní 2024 þar með uppfyllt:
Vegna sameiningar Starfsmannafélags Dala- og Snæfellssýslu, Félags opinberra starfsmanna
á Vestfjörðum, Starfsmannafélags Fjarðarbyggðar og Starfsmannafélags Fjallabyggðar við
Kjöl – stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu eru samningsaðilar sammála um að eldri
kjarasamningar halda gildi sínu með þeim breytingum sem samkomulag þetta felur í sér.
Á samningstímanum verður unnið að einum heildstæðum kjarasamningi. Skal sú vinna hefjast
haustið 2024 og vera lokið eigi síðar en 1. nóvember 2024. 
Samhliða skal unnið að því að færa öll ofantalin félög undir nafn og kennitölu Kjalar – stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu í Orra, launakerfi ríkisins.