Kjarasamningur við ríkið
Bókanir
Bókun 1 - Vegna bakvakta
Samningsaðilar eru sammála um að skipa starfshóp um endurskoðun á fyrirkomulagi bakvakta og útköll þeim tengdum. Í hópnum skulu sitja fulltrúar opinberra launagreiðenda og bandalaga opinbers launafólks auk fulltrúa stéttarfélaga er málið kann að varða.
Starfshópurinn mun kortleggja umfang bakvakta, skoða tíðni og tegundir útkalla og vinna að því að tölfræði vegna bakvakta sé bætt. Vinnan skal meðal annars felast í því að skoða hvernig bakvaktarfrí er tekið og hvort það séu ákveðnir hópar sem ekki eru að fá bakvaktarfrí.
Þá skal hópurinn greina og leggja mat á hvort að fýsilegt sé að bakvaktir gangi upp í vinnuskyldu samhliða því að bakvaktarfrí skv. gr. 2.5.4. falli niður.
Eigi síðar en 1. október 2024 skulu aðilar hafa skipað fulltrúa sína í starfshópinn og skulu fulltrúar launafólks boða til fyrsta fundar. Vinnuhópurinn skilgreinir nánar viðfangsefnið og verklag. Stefnt skal að því að tillögur liggi fyrir eigi síðar en 31. maí 2025.
Bókun 2 - Vegna niðurfellingar á gr. 3.2
Þrátt fyrir niðurfellingu á gr. 3.2 eru samningsaðilar sammála um að þeir einstaklingar og/eða starfahópar sem voru með matar- og kaffitíma í yfirvinnu sem hluta af vinnuskipulagi fyrir gildistöku kjarasamnings sem undirritaður var árið 2024 og hafa að jafnaði fengið reglubundið slíkar greiðslur skulu halda sambærilegum greiðslum sbr. eftirfarandi. Breytingar skulu ekki leiða til launalækkunar og gæta skal jafnræðis innan starfahópa. Síða 44 af 53
3.2.1 Sé unnin yfirvinna, skulu vera matartímar 1 klst. kl. 19:00 - 20:00 að kvöldi, kl. 03:00 - 04:00 að nóttu og á tímabilinu 11:30 - 13:30 á frídögum skv. gr.2.1.4. Matartímar þessir á yfirvinnutímabili teljast til vinnutímans.
3.2.2 Sé unnin yfirvinna eða aukavakt, skulu kaffitímar vera kl. 21:00-21:20, 24:00-00:20, 05:40-06:00 og síðustu 15 mín. fyrir dagvinnumörk. Kaffi og matartímar í yfirvinnu á tímabilinu 08:00-17:00 skulu vera þeir sömu og í dagvinnu.
Bókun 3 - Vegna vakta og viðverukerfa
Mikilvægt er að vakta- og viðverukerfi ríkisins taki mið af ólíkri starfsemi og þörfum stofnana, ólíkum störfum og vinnutímafyrirkomulagi starfsfólks og að kerfin séu notendavæn. Við skipulagningu vakta þarf að stuðla að betri vinnutíma, tryggja þarfir starfseminnar og jafnræði innan starfsmannahópsins ásamt því að tekið sé tillit til óska starfsfólks ef því verður við komið starfseminnar vegna. Tryggja skal fyrirsjáanleika, öryggi og heilsu starfsfólks til að stuðla að jafnvægi vinnu og einkalífs. Aðilar eru sammála um að samhliða innleiðingu nýrra vakta- og viðverukerfa, sem unnið er að verði farið í fræðsluátak varðandi notkun og nýtingu kerfanna.
Bókun 4 - Stýrihópur um betri vinnutíma
Komi til þess að breytingar á betri vinnutíma dags. 10. júní 2024 nái ekki þeim markmiðum sem lagt er upp með eða álitaefni verða varðandi túlkun á breytingum, þá skal stýrihópur samningsaðila sem skrifuðu undir breytingarnar, fjalla um málið og finna lausn. Stýrihópur mun starfa út samningstímann, 2024-2028.
Þær leiðbeiningar og eftir atvikum úrlausnarefni sem stýrihópurinn gaf út árið 2021 samhliða innleiðingu á ,,Betri vinnutíma” halda gildi sínu eftir því sem við á. Stýrihópurinn mun koma saman í september 2024 og uppfæra leiðbeiningarnar og eftir atvikum úrlausnarefnin með tilliti til þeirra breytinga sem urðu í kjarasamningum árið 2024
Bókun 5 - Útgáfa heildarkjarasamnings
Aðilar eru sammála um að fella texta þessa samnings að heildartexta kjarasamnings og eftir atvikum taka út bókanir sem eiga ekki lengur við. Þeirri vinnu skal lokið fyrir 31. október 2024.
Bókun 6
Vegna sameiningar Starfsmannafélags Dala- og Snæfellssýslu, Félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum, Starfsmannafélags Fjarðarbyggðar og Starfsmannafélags Fjallabyggðar við Kjöl – stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu eru samningsaðilar sammála um að eldri kjarasamningar halda gildi sínu með þeim breytingum sem samkomulag þetta felur í sér.
Síða 45 af 53 Á samningstímanum verður unnið að einum heildstæðum kjarasamningi. Skal sú vinna hefjast haustið 2024 og vera lokið eigi síðar en 1. nóvember 2024. Samhliða skal unnið að því að færa öll ofantalin félög undir nafn og kennitölu Kjalar – stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu í Orra, launakerfi ríkisins.
Bókun 7
Hingað til hefur ekki hefur verið greitt iðgjald í Þróunar- og símenntunarsjóð bæjarstarfsmannafélaga hjá ríkinu vegna félagsmanna Starfsmannafélags Suðurnesja. Frá og með gildistöku þessa samnings greiðir launagreiðandi sérstakt iðgjald í Þróunar- og símenntunarsjóð sem nemur 0,5% af heildarlaunum félagsmanna. Launagreiðandi greiðir einnig framlag sem nemur 0,25% af heildarlaunum félagsmanna í Starfsmennt eins og kveðið er á um í kjarasamningi aðila frá 9. mars 2020.
Eftirfarandi bókanir úr kjarasamningi aðila sem var undirritaður 9. mars 2020 halda gildi sínu:
Bókun 8
Í tengslum við gerð kjarasamnings aðila komu upp álitaefni um verkefna- og vinnutímaskipulag stuðningsfulltrúa í framhaldsskólum. Samningsaðilar eru sammála um að fara yfir stöðu mála og kortleggja vinnutíma- og skipulag stuðningsfulltrúa í framhaldsskólum þar sem félagsmenn aðildarfélaga BSRB starfa. Í framhaldi munu aðilar koma með tillögu að viðmiði um hvernig störf stuðningsfulltrúa verði best aðlöguð að störfum skólanna og starfstíma þeirra. Hópurinn skal skila tillögum fyrir 30. september 2020.
Bókun 9
Þeir starfsmenn sem voru í starfi 1. janúar 1989 og 1990 (Verkaskiptalög) og færðir voru í B – deild LSR úr viðkomandi sveitarfélagasjóði halda ávinnslu í B – deild LSR eins og um óslitna aðild hafi verið að ræða í viðkomandi sjóði. Þetta á við um 95 ára reglu og 32 ára reglu. Hafi þeir flutt sig í A -deild LSR þá gilda þar sömu reglur og um aðra sem það gerðu 1. desember 1997.