Kjarasamningur við ríkið
6 Aðbúnaður og hollustuhættir
6.1 Réttur starfsmanna
6.1.1
Starfsmenn skulu njóta réttinda skv. lögum nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, enda falli starf þeirra ekki undir önnur lög.
6.2 Um vinnustaði
6.2.1
Vinnustaður skal þannig úr garði gerður, að þar sé gætt fyllsta öryggis og góðs aðbúnaðar og hollustuhátta, sbr. VI. kafla laga nr. 46/1980.
6.3 Lyf og sjúkragögn
6.3.1
Algengustu lyf og sjúkragögn skulu vera fyrir hendi á vinnustað til nota við fyrstu aðgerð í slysatilfellum. Lyf og sjúkragögn skulu vera í vörslu og á ábyrgð verkstjóra og trúnaðarmanna.
6.4 Öryggiseftirlit
6.4.1
Á vinnustöðum skal vera fyrir hendi til afnota tæki og öryggisbúnaður, sem Vinnueftirlit ríkisins telur nauðsynlegan.
6.4.2
Skipa skal öryggisverði, öryggistrúnaðarmenn og öryggisnefndir í samræmi við II. kafla laga nr. 46/1980.
6.5 Slysahætta
6.5.1
Varast skal eftir föngum, að starfsmaður sé einn við störf þar sem slysahætta er mikil.
Um þetta atriði skal semja þar sem það á við.
6.6 Læknisskoðun / veikindi
6.6.1
Á vinnustöðum þar sem sérstök hætta er á heilsutjóni starfsmanna, getur stéttarfélag óskað sérstakrar læknisskoðunar á starfsfólki. Telji sérmenntaður embættislæknir Vinnueftirlits ríkisins slíka skoðun nauðsynlega, skal hún framkvæmd eins og fljótt og unnt er.