Kjarasamningur við ríkið
18 Gildistími, samningsforsendur og atkvæðagreiðsla
18.1 Gildistími samningsins
18.1.1
Kjarasamningur þessi gildir frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028 og fellur þá úr gildi án frekari fyrirvara.
18.2 Samningsforsendur og atkvæðagreiðsla
18.2.1
Kjarasamningur þessi er gerður í kjölfar kjarasamninga á almennum vinnumarkaði í mars 2024. Komi til þess að launa- og forsendunefnd ASÍ og SA ákveði launaeða kjarabreytingar vegna forsendubrests skulu aðilar taka upp viðræður um með hvaða hætti slík breyting gildi fyrir samning þennan. Slíkar breytingar skulu skila sambærilegum kjarabreytingum og á almennum markaði enda feli þær ekki í sér breytingar á kjörum sem þegar er að finna í kjarasamningi aðila.
Komi til þess að kjarasamningum á almennum markaði verði sagt upp á grundvelli forsenduákvæðis þeirra á gildistíma samnings þessa er hvorum aðila heimilt að segja samningi þessum upp með þriggja mánaða fyrirvara miðað við mánaðamót.
Samningsaðilar skulu bera samning þennan upp til samþykktar, ásamt bókunum og fylgiskjölum. Hafi gagnaðila ekki borist tilkynning um niðurstöðu fyrir klukkan 12 þann 24. júní 2024 skoðast hann samþykktur.